„Með ólíkindum að við höfum tapað þessum leik“ Gunnar Egill Daníelsson skrifar 5. júlí 2026 08:57 Lárus Orri er svekktur að hafa misst forystu leiksins gegn Blikum í gær ÍA Lárus Orri Sigurðsson þjálfari ÍA var undrandi á því að lið hans hafi tapað 1-2 fyrir Breiðabliki í 13. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á ELKEM vellinum á Akranesi í gær. „
Ég upplifði hann þannig að við vorum virkilega með þennan leik, frá A til Ö fannst mér. Við vorum mun betri aðilinn í fyrri hálfleik. Ég man ekki eftir því að þeir hafi skapað sér nokkurn skapaðan hlut í fyrri hálfleik og fengum allavega tvö ef ekki þrjú mjög góð færi. Staðan var 1-0 í hálfleik en hefði átt að vera meiri en það, við hefðum átt að vera tveimur mörkum yfir. Komandi inn í seinni hálfleikinn var ég mjög rólegur. Það var lítið að gerast í leiknum og mér fannst við í rauninni stjórna leiknum án bolta. Þegar við fengum boltann vorum við með flott uppspil og mun hættulegri en þeir. Þetta mark sem þeir skora kemur svo upp úr þurru. Jafnvel eftir markið hjá þeim var í raun ekkert í kortunum að þeir væru að fara að setja annað mark. Það er með ólíkindum að við höfum tapað þessum leik,“ sagði Lárus Orri við Sýn Sport eftir leik. Áttum að vera búnir að klára leikinn Fátt var í gangi í leiknum þegar ÍA var einu marki yfir en afdrifarík mistök Hauks Andra Haraldssonar á 64. mínútu leiddu til þess að Breiðablik jafnaði metin. Í kjölfarið náði Breiðablik svo að knýja fram sigurmark. „Við missum boltann á miðjum vellinum. En eins og með öll mörk má rekja það til mistaka. Við eigum innkast sem við köstum á leikmann sem er undir pressu, leikmaður undir pressu á erfiða sendingu og varnarmaður nær ekki að tækla boltann. Úr verður einhvern veginn úr engu staðan þrír á einn og þannig kemur markið. Mörkin komu svona. Það var raunverulega ekki það sem varð til þess að við töpuðum leiknum. Við hefðum bara átt að vera búnir að klára þennan leik,“ sagði þjálfarinn. Mjög ólík töp ÍA hefur nú tapað þremur leikjum í röð í Bestu deildinni en Lárus Orri var töluvert ánægðari með leikinn í dag samanborið við leikinn á undan, sem tapaðist 0-2 gegn Fram. „Þrír tapleikir í röð en þessi þrjú töp eru öll mjög ólík. Það er ekki hægt að tala um þetta tap við hliðina á tapinu á móti Fram. Þetta var allt annað og það er hellingur í þessum leik sem við tökum með okkur í næsta leik. Slæmt tap, svekkjandi tap en margir góðir hlutir. Mér líður betur núna en eftir Fram leikinn þó að núll stig séu niðurstaðan í þeim báðum,“ sagði Lárus Orri Sigurðsson að endingu í samtali við Sýn Sport.
Íslenski boltinn Besta deild karla ÍA Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Fótbolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Fleiri fréttir Barcelona - Real Madrid | Stórleikur á Spáni Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Sjá meira