Jón Þór Hauksson: „Með ólíkindum að við klárum ekki þennan leik“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 3. júlí 2026 21:43 Jón Þór var ekki sáttur með jafnteflið á Kaplakrika. vísir/lýður Stjarnan gerði í kvöld 2-2 jafntefli á útivelli gegn FH, þar sem öll mörk leiksins komu í fyrri hálfleik. Stjarnan herjaði að marki FH-inga síðari hluta seinni hálfleiks en án árangurs.
Jón Þór Hauksson, þjálfari Stjörnunnar, segist ekki hafa vantað upp á neitt hjá sínum mönnum í seinni hálfleik annað en að boltinn færi í markið. „Að boltinn fari bara inn í seinni hálfleik. Mér fannst þetta vera hörku leikur í fyrri hálfleik og svolítið fram og til baka og kaos á köflum. Síðan í seinni hálfleik finnst mér við taka algjörlega yfir leikinn og í raun bara eitt lið á vellinum í seinni hálfleik. Ótrúlegt að hafa ekki náð að klára það, er drullu svekktur með það.“ FH hóf leikin mun betur og voru fyrri til að skora. Gestirnir tóku sér þó ekki langan tíma í það að jafna leikinn. Jón Þór bjóst við að FH kæmi inn í leikinn af fullum krafti. „Eins og við mátti búast þá fengum við FH-ingana mjög kröftuga og orkumikla inn í leikinn og við vissum það. Þetta er lið sem er að reyna að rembast við það að stoppa blæðinguna sem er búin að vera hérna í sumar og eru núna fjórða leikinn í röð að fara án taps. Við vissum hvernig þeir kæmu inn í leikinn og mér fannst við ekki takast nægilega vel við það. Menn áttu erfitt með að fóta sig og fyrsta snerting á boltann og sendingar lélegar og þar fram eftir götunum. Svo komum við sterkir út í seinni hálfleikinn og tókum öll völd á vellinum fannst mér, bara með ólíkindum að við klárum ekki þennan leik hérna.“ Á 69. mínútu skipti Jón Þór tveimur af allra bestu mönnum Stjörnunnar, Birni Snæ og Örvari Eggertssyni, af velli. Birnir Snær hafði lagt upp fyrra mark Stjörnunnar og átt lykilsendingu í síðara markinu sem Örvar skoraði. Aðspurður hver ástæðan væri fyrir að hann hafi tekið þá af velli, sagði Jón Þór enga sérstaka ástæðu liggja að baki aðra en þá að fá inn nýja leikmenn sem áttu að landa sigri. „Nei, bara í þessari leit okkar að vinna þennan leik gerðum við þessa skiptingu. Við vildum bara annað krydd í það og það lá ekkert annað að baki þess.“ Jón Þór var spurður að lokum hvort Stjarnan tæki eitthvað með sér frá þessum leik. Var svarið stutt. „Ekki neitt.“
Íslenski boltinn Besta deild karla Stjarnan Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Fótbolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Sjá meira