Átján ára markahæst: Nýtir pirringinn sem orku og fer glaðbeitt á EM Sindri Sverrisson skrifar 25. júní 2026 09:02 Freyja Stefánsdóttir geislaði af gleði á Laugardalsvellinum í gær áður en hún hélt með U19-landsliðinu á sjálft Evrópumótið. vísir/Lýður Freyja Stefánsdóttir hefur farið á kostum með Víkingi í Bestu deildinni í sumar og skorað sex mörk. Í dag ferðast hún svo til Bosníu með U19-landsliði Íslands, í sjálfa lokakeppni Evrópumótsins. Freyja er aðeins 18 ára gömul en hún er önnur af tveimur markahæstu leikmönnum Bestu deildarinnar í sumar, eftir fjögur mörk í síðustu þremur leikjum. Fyrir þetta tímabil hafði hún samtals skorað tvö mörk í efstu deild en nú virðast allar flóðgáttir hafa opnast. „Það er ekki leiðinlegt. Sérstaklega eftir síðasta tímabil sem var smá vonbrigði. Ég ætlaði bara að bæta fyrir það núna og gera mitt besta í því. Ég er komin með stærra hlutverk núna og ætla að skila mínu í mínu liði. Taka meira til mín,“ segir Freyja ákveðin. Freyja hefur þegar skorað sex mörk eins og fyrr segir, og það þrátt fyrir að vera oft í hlutverki varamanns í Víkingsliðinu. Þær Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir, 19 ára leikmaður Breiðabliks, eru markahæstar í Bestu deildinni nú þegar hlé tekur við vegna Evrópumóts U19-landsliða. „Það er aðallega bara pirringur í mér yfir að vera á bekknum – ætla að koma inn á og skora mörk. Það gefur manni extra búst... Ég tek bara því hlutverki sem mér er gefið í mínu liði og skila mínu,“ segir Freyja eldhress en hún ræddi við Vísi á Laugardalsvelli í gær. „Ég hef verið sjálf með mín markmið og reynt að fylgja þeim. Ég tók svolítið mikið af aukaæfingum. Búin að vera í slúttæfingum í vetur með Einari [Guðnasyni, þjálfara Víkings] og við mikið búin að einblína á það saman að koma inn þessum mörkum. Ég er búin að finna „touchið“ í netinu aftur og aftur, og það eina sem ég vil gera í leikjum er að koma boltanum inn.“ Freyja var aðeins nýorðin 14 ára þegar hún skrifaði undir sinn fyrsta samning við Víking. Hún hélt í morgun af stað með U19-landsliði Íslands til Sarajevo á Evrópumótið – þar sem aðeins átta bestu landslið Evrópu spila. Á leiðinni á EM sló Ísland út lið á borð við Danmörku, Finnland og Serbíu. Gleðin var við völd á æfingu í gær en nú tekur alvaran brátt við. Leikir Íslands á EM í Bosníu: 28. júní kl. 15: Austurríki - Ísland 1. júlí kl. 15: Spánn - Ísland 4. júlí kl. 15: Ísland - Sviss Geggjaðar vinkonur og samstilltur hópur á EM „Þetta er geggjað tækifæri. Sturlað að vera að fara á EM og geta sýnt sig þar. Við erum geggjaður hópur og ætlum okkur að gera góða hluti þarna úti. Við erum drullugóðar. Í undanriðlinum vorum við bara að spila ógeðslega vel. Okkar bolta og ekkert að spá allt of mikið í hinum. Þá vorum við bara geggjaðar. Þetta er geðveikur hópur, ótrúlega samstilltar og góðar. Geggjaðar vinkonur og það spilar stórt hlutverk. Geggjað staff og allt. Við erum allar að leggja okkur fram og spila saman. Þetta verður klárlega mjög krefjandi og erfitt. Við þurfum að fara með fullan fókus í þetta verkefni og ætlum okkur klárlega að komast upp úr riðlinum og í undanúrslit. Við leggjum okkur allar fram í að ná einhverjum úrslitum,“ segir Freyja. Nauðsynlegt að hafa smá „flipperí“ Hún er mikill stuðbolti í íslenska hópnum og gefur greinilega vel af sér til liðsfélaganna, sem er mikilvægt á strembnu móti. „Auðvitað þarf líka að njóta og hafa gaman! Og alltaf smá flipperí líka. Ekki of mikið samt, það verður að vera fókus líka. Það er alltaf stemning hérna. Mér finnst geðveikt að koma hérna og vera með þessum stelpum, flippast og hafa gaman, og gera það sem öllum finnst skemmtilegast að gera hérna.“ Besta deild kvenna Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Fótbolti Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Enski boltinn Æfði með tveggja feta snák í hjálminum Sport Ronaldo gifti sig í fámenni Fótbolti Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Handbolti Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf „Mjög stoltur af sjálfum mér að hafa komist í gegnum þetta“ Fótbolti Handtekinn fyrir að skrifa falsfrétt Fótbolti Berglind fékk Gullboltann Körfubolti Nú á að okra á miðum á Ólympíuleikana Sport Fleiri fréttir Depay ósáttur við að fá ekki framlengdan samning Slot hafnar hollenska landsliðinu „Mjög stoltur af sjálfum mér að hafa komist í gegnum þetta“ Óvenjuleg leið á toppinn Monaco búið að gefast upp á Pogba Brann leggur inn kvörtun vegna rauða spjaldsins sem Kristall fékk Handtekinn fyrir að skrifa falsfrétt Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Olli árekstri í miðjum fótboltaleik Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Segir að Guardiola hafi verið „mjög nálægt“ því að taka við Ítalíu Ronaldo gifti sig í fámenni Kristall Máni skoraði og fékk rautt í dramatískum Evrópusigri Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Mátti ekki koma á HM en fær sviðsljósið annað kvöld Íslensku strákarnir byrjuðu á bekknum þegar AGF steinlá í Aserbaísjan Eyddi samfélagsmiðlum sínum PSG kvartaði yfir of litlum búningsklefa fyrir Ofurbikarinn Valgeir hefur neitað ýmsum liðum í sumar Inter Milan gerir tilboð í Spence Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mæta kýpversku meisturunum í fyrstu Evrópuleikjunum „Búið að gerast á frekar fyndinn hátt hjá mér síðustu ár“ Dómarastjóri UEFA um VAR: „Þetta er fótbolti, ekki PlayStation“ Stúkumönnum fannst ósanngjarnt að reka Conteh út af Sjáðu KR bæta markametið gegn Fram Trump segir að það væru skelfileg mistök að koma Infantino frá völdum Mourinho hringdi í Ferguson og grét Sjá meira
Freyja er aðeins 18 ára gömul en hún er önnur af tveimur markahæstu leikmönnum Bestu deildarinnar í sumar, eftir fjögur mörk í síðustu þremur leikjum. Fyrir þetta tímabil hafði hún samtals skorað tvö mörk í efstu deild en nú virðast allar flóðgáttir hafa opnast. „Það er ekki leiðinlegt. Sérstaklega eftir síðasta tímabil sem var smá vonbrigði. Ég ætlaði bara að bæta fyrir það núna og gera mitt besta í því. Ég er komin með stærra hlutverk núna og ætla að skila mínu í mínu liði. Taka meira til mín,“ segir Freyja ákveðin. Freyja hefur þegar skorað sex mörk eins og fyrr segir, og það þrátt fyrir að vera oft í hlutverki varamanns í Víkingsliðinu. Þær Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir, 19 ára leikmaður Breiðabliks, eru markahæstar í Bestu deildinni nú þegar hlé tekur við vegna Evrópumóts U19-landsliða. „Það er aðallega bara pirringur í mér yfir að vera á bekknum – ætla að koma inn á og skora mörk. Það gefur manni extra búst... Ég tek bara því hlutverki sem mér er gefið í mínu liði og skila mínu,“ segir Freyja eldhress en hún ræddi við Vísi á Laugardalsvelli í gær. „Ég hef verið sjálf með mín markmið og reynt að fylgja þeim. Ég tók svolítið mikið af aukaæfingum. Búin að vera í slúttæfingum í vetur með Einari [Guðnasyni, þjálfara Víkings] og við mikið búin að einblína á það saman að koma inn þessum mörkum. Ég er búin að finna „touchið“ í netinu aftur og aftur, og það eina sem ég vil gera í leikjum er að koma boltanum inn.“ Freyja var aðeins nýorðin 14 ára þegar hún skrifaði undir sinn fyrsta samning við Víking. Hún hélt í morgun af stað með U19-landsliði Íslands til Sarajevo á Evrópumótið – þar sem aðeins átta bestu landslið Evrópu spila. Á leiðinni á EM sló Ísland út lið á borð við Danmörku, Finnland og Serbíu. Gleðin var við völd á æfingu í gær en nú tekur alvaran brátt við. Leikir Íslands á EM í Bosníu: 28. júní kl. 15: Austurríki - Ísland 1. júlí kl. 15: Spánn - Ísland 4. júlí kl. 15: Ísland - Sviss Geggjaðar vinkonur og samstilltur hópur á EM „Þetta er geggjað tækifæri. Sturlað að vera að fara á EM og geta sýnt sig þar. Við erum geggjaður hópur og ætlum okkur að gera góða hluti þarna úti. Við erum drullugóðar. Í undanriðlinum vorum við bara að spila ógeðslega vel. Okkar bolta og ekkert að spá allt of mikið í hinum. Þá vorum við bara geggjaðar. Þetta er geðveikur hópur, ótrúlega samstilltar og góðar. Geggjaðar vinkonur og það spilar stórt hlutverk. Geggjað staff og allt. Við erum allar að leggja okkur fram og spila saman. Þetta verður klárlega mjög krefjandi og erfitt. Við þurfum að fara með fullan fókus í þetta verkefni og ætlum okkur klárlega að komast upp úr riðlinum og í undanúrslit. Við leggjum okkur allar fram í að ná einhverjum úrslitum,“ segir Freyja. Nauðsynlegt að hafa smá „flipperí“ Hún er mikill stuðbolti í íslenska hópnum og gefur greinilega vel af sér til liðsfélaganna, sem er mikilvægt á strembnu móti. „Auðvitað þarf líka að njóta og hafa gaman! Og alltaf smá flipperí líka. Ekki of mikið samt, það verður að vera fókus líka. Það er alltaf stemning hérna. Mér finnst geðveikt að koma hérna og vera með þessum stelpum, flippast og hafa gaman, og gera það sem öllum finnst skemmtilegast að gera hérna.“
Leikir Íslands á EM í Bosníu: 28. júní kl. 15: Austurríki - Ísland 1. júlí kl. 15: Spánn - Ísland 4. júlí kl. 15: Ísland - Sviss
Besta deild kvenna Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Fótbolti Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Enski boltinn Æfði með tveggja feta snák í hjálminum Sport Ronaldo gifti sig í fámenni Fótbolti Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Handbolti Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf „Mjög stoltur af sjálfum mér að hafa komist í gegnum þetta“ Fótbolti Handtekinn fyrir að skrifa falsfrétt Fótbolti Berglind fékk Gullboltann Körfubolti Nú á að okra á miðum á Ólympíuleikana Sport Fleiri fréttir Depay ósáttur við að fá ekki framlengdan samning Slot hafnar hollenska landsliðinu „Mjög stoltur af sjálfum mér að hafa komist í gegnum þetta“ Óvenjuleg leið á toppinn Monaco búið að gefast upp á Pogba Brann leggur inn kvörtun vegna rauða spjaldsins sem Kristall fékk Handtekinn fyrir að skrifa falsfrétt Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Olli árekstri í miðjum fótboltaleik Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Segir að Guardiola hafi verið „mjög nálægt“ því að taka við Ítalíu Ronaldo gifti sig í fámenni Kristall Máni skoraði og fékk rautt í dramatískum Evrópusigri Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Mátti ekki koma á HM en fær sviðsljósið annað kvöld Íslensku strákarnir byrjuðu á bekknum þegar AGF steinlá í Aserbaísjan Eyddi samfélagsmiðlum sínum PSG kvartaði yfir of litlum búningsklefa fyrir Ofurbikarinn Valgeir hefur neitað ýmsum liðum í sumar Inter Milan gerir tilboð í Spence Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mæta kýpversku meisturunum í fyrstu Evrópuleikjunum „Búið að gerast á frekar fyndinn hátt hjá mér síðustu ár“ Dómarastjóri UEFA um VAR: „Þetta er fótbolti, ekki PlayStation“ Stúkumönnum fannst ósanngjarnt að reka Conteh út af Sjáðu KR bæta markametið gegn Fram Trump segir að það væru skelfileg mistök að koma Infantino frá völdum Mourinho hringdi í Ferguson og grét Sjá meira