Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. júní 2026 06:32 Mark Hughes er bæði þekktur fyrir feril sinn sem knattspyrnumaður og knattspyrnustjóri í ensku úrvalsdeildinni. Getty/ Alex Livesey Manchester United-goðsögnin Mark Hughes segist vera niðurbrotinn eftir að sonur hans, Alex, lést, aðeins 38 ára að aldri.
Alex Hughes starfaði sem yfirmaður leikmannaumsjónar hjá enska fótboltafélaginu Grimsby. Félagið staðfestir andlát hins 38 ára gamla á eigin miðlum. Fjölskyldan hefur einnig sent frá sér yfirlýsingu í gegnum Samtök knattspyrnustjóra. „Við Jill erum algjörlega niðurbrotin vegna skyndilegs og óvænts fráfalls ástkærs sonar okkar, Alex,“ segir Mark Hughes í yfirlýsingunni. Mark Hughes' son Alex dies aged 38 https://t.co/fTRomheuwK— BBC News (UK) (@BBCNews) June 21, 2026 „Alex var dásamlegur sonur, bróðir Curtis og Xennu, tryggur eiginmaður Jessicu og ástríkur faðir tveggja fallegra barna þeirra, Sebastians og Leonardos,“ bætir hann við. Fjölskyldan biður um að einkalíf hennar sé virt á meðan hún reynir að vinna úr missinum. Mark Hughes skapaði sér bæði nafn sem leikmaður og knattspyrnustjóri en hann var stjóri Carlisle United á síðasta tímabili eftir að hafa stýrt liðum eins og Manchester City, Fulham og Queens Park Rangers á árum áður. Sem leikmaður lék Hughes um tíma með bæði Barcelona og Bayern München en lengst var hann hjá Manchester United. Hann var tvisvar enskur meistari og þrisvar enskur bikarmeistari með United og skoraði einnig bæði mörkin í úrslitaleik þegar liðið varð Evrópumeistari bikarhafa vorið 1991 eftir sigur á Barcelona. Everyone at Grimsby Town Football Club is devastated to learn of the sudden and unexpected passing of our Player Recruitment Lead, Alex Hughes.Rest in peace, Alex. Once a Mariner, always a Mariner.#GTFC— Grimsby Town F.C. (@officialgtfc) June 21, 2026
Enski boltinn Mest lesið Albert ekki meira með íslenska landsliðinu Fótbolti Neitar að biðjast afsökunar á niðrandi færslu um Heimi Fótbolti „Þetta er þorpið manns“ Íslenski boltinn Íslenska landsliðið í bakgarðshlaupum klárt Sport Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk Íslenski boltinn Kane klúðraði víti og heimsmeistararnir voru fljótir að refsa Fótbolti Vill að mótherji hans fari í bann eftir árekstur Formúla 1 Leikmaður Írlands dregur sig úr leikmannahóp gegn Ísrael Fótbolti Mæta til leiks gegn Ísrael: „Líður engum vel með að spila þennan leik“ Fótbolti Umfjöllun: Ísland – Eistland 1-1 Svekkjandi jafntefli á Laugardalsvelli Fótbolti Fleiri fréttir Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Sjá meira