Lífið

„Þegar leiðir okkar lágu saman með Kaleo small þetta allt saman“

Freyja Þórisdóttir skrifar
"Það er einhver bið í að bjórinn fari í almenna sölu, því mæli ég endregið með því að tónleikagestir um helgina láti þetta tækifæri ekki framhjá sér fara." segir Árni í tilkynningunni.
"Það er einhver bið í að bjórinn fari í almenna sölu, því mæli ég endregið með því að tónleikagestir um helgina láti þetta tækifæri ekki framhjá sér fara." segir Árni í tilkynningunni. Aðsend

Borg Brugghús og Kaleo hafa leitt saman hesta sína og hefur nú verið gefinn út samstarfsbjórinn, Hey Gringo, sem dregur nafn sitt af samnefndu lagi sveitarinnar af plötunni Surface Sounds frá árinu 2021. Hann fer þó ekki í almenna sölu fyrr en síðar í sumar.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í tilkynningu en þar er einnig greint frá því að bjórinn detti ekki í verslanir fyrr en seint í sumar, líklega í ágústmánuði, en að tónleikagestir á KALEO-tónleikunum á Þingvöllum um helgina fái „einstakt forskot á sæluna“.

Sól og sandur á milli tánna

Hey Gringo verður forsýndur við afhendingu armbanda í verslun 66 gráður Norður á Hafnartorgi í dag, föstudaginn 19. júní, áður en hann verður fáanlegur á tónleikasvæðinu sjálfu á laugardag en fólki býðst að koma og smakka hann til klukkan 18:00 í dag.

"Hey Gringo er léttur og einstaklega ferskur mexíkóskur lagerbjór. Hugmyndin af bjórnum var að fanga alvöru sumarstemmingu - sól, sandur á milli tánna, fáránlega ferskur bjór og lime sneið ef fólk vill fara með þetta alla leið. Ekki skemmir fyrir að hann er léttur á alla vegu, bæði í áfengisprósentu sem og í kaloríum,“ segir Árni Theodór Long, Bruggmeistari hjá Borg Brugghúsi í tilkynningunni. 

Þá bætir hann við að hugmyndin um að brugga bjór af þessu taki hafi lengi blundað hjá þeim í brugghúsinu en að loks hafi henni verið hrundið í framkvæmd nú þegar leiðir þeirra lágu saman með Kaleo.

"Það lá í augum uppi að bjórinn fengi nafnið Hey Gringo enda lagið ekkert eðlilega gott og grípandi og fangar þessa stemmingu fullkomlega. Það að fá tækifæri til að vinna með jafn stóru og flottu bandi og Kaleo er sannur heiður og virkilega skemmtilegt,“ segir Árni jafnframt og bætir við að „Kaleo-menn mættu að sjálfsögðu til okkar í brugghúsið, brettu upp ermar og tóku þátt í að skapa þetta með okkur og gáfu okkur bruggmeisturunum ekkert eftir í þeim efnum“.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.