Mark dæmt af KA eftir að Framari braut á Framara Aron Guðmundsson skrifar 15. júní 2026 18:52 VIktor Freyr stendur í marki Fram á Akureyri Vísir/Pawel Athyglisvert atvik átti sér stað í leik KA og Fram í Bestu deild karla í fótbolta á Akureyri sem nú stendur yfir. Mark var tekið af KA að því er virðist eftir að Framari hafði brotið á samherja sínum, markverði Fram.
Leikurinn byrjaði af miklum krafti en þrjú mörk, sem stóðu, voru skoruð á fyrsta stundarfjórðungi leiksins. Það var Þorri Stefán Þorbjörnsson sem skoraði fyrsta mark leiksins fyrir fram á 6.mínútu en aðeins þremur mínútum síðar jafnaði Hallgrímur Mar Steingrímsson metin fyrir heimamenn. Í stöðunni 1-1 virtist Birgir Baldvinsson vera að koma KA yfir með marki eftir hornspyrnu en Elías Ingi Árnason, dómari leiksins, dæmdi leikbrot á KA og því stóð mark Birgis ekki. Klippa: Löglegt mark tekið af KA? Í endursýningu af atvikinu, sem má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, er erfitt að sjá einhvern af leikmönnum KA brjóta af sér en í kringum Viktor Frey Sigurðsson, skapast óreiða og má ekki sjá betur en að þar sé það samherji hans í Fram, Ægir Jarl Jónasson, sem þvælist fyrir honum. KA-menn virðast mega vera ósáttir með þessa ákvörðun Elíasar en skömmu eftir atvikið komust þeir þó yfir með marki frá Sveini Margeiri Haukssyni. 2-1 Þegar að þessi frétt birtist var staðan hins vegar 3-2 fyrir Fram og kominn hálfleikur. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland. Umrætt atvik sem fréttin fjallar um verður án efa krufið til mergjar í Stúkunni annað kvöld á Sýn Sport Ísland. Hún hefst eftir leiki Bestu deildarinnar annað kvöld.
Besta deild karla Fram KA Mest lesið Blómstrar undir stjórn Freys: „Veit ekki hversu lengi við náum að halda honum“ Fótbolti Eiði Smára ekki skemmt Enski boltinn Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu Íslenski boltinn Tókust á um Íslendinginn: „Ætlarðu að vera svona barnalegur?“ Fótbolti Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu Enski boltinn Gaui Þórðar opnar sig um veikindi: „Erfiðir dagar, mánuðir og vikur“ Íslenski boltinn Ellefu ára senuþjófur fékk að vaka: „Ef hann ætlar að vinna þá þarf hann pepp“ Sport Áfall fyrir landsliðið og Söndru sem var borin af velli Fótbolti Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Íslenski boltinn Sveindís Jane tileinkaði kærasta sínum markið Fótbolti Fleiri fréttir Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu Gaui Þórðar opnar sig um veikindi: „Erfiðir dagar, mánuðir og vikur“ „Hugsa að ég geri bara ekki rassgat“ Uppgjörið: Keflavík - Fram 2-2 | Stig sem gerir ekki mikið fyrir bæði lið Uppgjörið: ÍA - Breiðablik 4-1 | Skítlétt á Skaganum Uppgjörið: FH - Stjarnan 5-2 | Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Uppgjörið: ÍBV - Valur 1-1 | Grátlegt jafntefli hjá Eyjamönnum Blikakonur með í tölvuleik og brjóta blað „Ég hef ekki séð svona áður hjá neinum leikmanni“ Skolað í burtu úr Vesturbæ en skáluðu hjá Audda Blö „Þetta er ekki að fara að brjóta Þórsliðið“ Adam Ægir: „Ég skuldaði KA þetta“ Sjáðu markið sem kom Þrótti í Bestu deildina „Klúbbur sem ætti að geta verið með bestu klúbbum landsins“ KA – Þór 3-0 | Sendu erkifjendurna í fallsæti með lífsnauðsynlegum sigri Þróttur R. - Fylkir 1-0 | Þróttarar upp í Bestu deild eftir tíu ára bið „Er þetta ekki ástæðan fyrir því að menn borga sig inn?“ Uppgjörið: Valur - Þór/KA 0-1 | Margrét tryggði Þór/KA dýrmæt stig á Hlíðarenda „Hef engan smekk fyrir því hvernig þeir haga sér“ Hvar er reiði Sölvi? „Þarf mjög mikið til að fá mig til að missa kúlið“ Læti í göngunum eftir leik Uppgjörið: KR - Víkingur R. 1-2 | Fimm rauð og Víkingar meistarar Sjáðu trylltan fögnuð Víkinga þegar titillinn var í höfn og viðtal við hetjuna Leikirnir við HK fín æfing fyrir stóru stundina Menn eigi ekki að bugast yfir pressu og ávísun Kraftaverkamaðurinn á Húsavík hættur Stór dagur fyrir Ottesen fjölskylduna „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Sjá meira