Viðskipti innlent

Til­boð Reita í upp­byggingu hjúkrunarheimilis valið

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Svona er áformað að hjúkrunarheimilið líti út.
Svona er áformað að hjúkrunarheimilið líti út. Reitir

Tilboð Reita í uppbyggingu á nýju hjúkrunarheimili á Akureyri var valið af Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum í útboði sem lauk nýlega. Hjúkrunarheimilið mun rísa við Þursaholt sex og rúma 140 íbúa.

Reitir greina frá þessu í tilkynningu til Kauphallarinnar. Hjúkranarheimilið verður um 9.100 fermetrar að stærð.

Að framkvæmdum loknum tekur við verðtryggður leigusamningur milli Reita og Ríkiseigna til 25 ára um hjúkrunarheimilið þar sem Reitir munu annast rekstur húsnæðisins en Ríkiseignir fela öðrum rekstur hjúkrunarheimilisins.

„Við fögnum tækifærinu að fá að leggja þekkingu og reynslu okkar á vogarskálarnar við að byggja upp nýtt og glæsilegt hjúkrunarheimili á Akureyri. Þróun fasteigna og innviða sem samfélagið þarfnast er liður í framtíðarsýn Reita og öldrun þjóðar kallar á stórtæka aukningu hjúkrunarheimila víðs vegar um land. Við munum leggja metnað í örugga og hraða uppbyggingu svo mæta megi þörfinni sem fer vaxandi dag frá degi,“ segir Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita.

Hjúkrunarheimilið verður byggt með samblandi af forsmíðuðum og forsteyptum einingum og munu Reitir ráðast í hönnun og framkvæmdirnar í samstarfi við Art-Verk ehf.

Alls bárust 10 tilboð í verkefnið frá fimm aðilum og var tilboð Reita metið hagstæðast samkvæmt valforsendum útboðslýsingar. Eftir töku tilboðs verða frumuppdrættir leigusala fullunnir í samstarfi við rekstraraðila og FSRE. Að því loknu hefst vinna við gerð aðaluppdrátta og fullnaðarhönnun áður en framkvæmdir hefjast svo að fullu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×