Amorim tekur við AC Milan Sindri Sverrisson skrifar 15. júní 2026 10:27 Rúben Amorim átti afar erfitt uppdráttar hjá Manchester United en fær nú nýtt tækifæri hjá AC Milan. Getty/Jacob King Rúben Amorim, fyrrverandi aðalþjálfari Manchester United, hefur samþykkt að verða næsti þjálfari ítalska stórveldisins AC Milan og mun formlega skrifa undir samning þess efnis í þessari viku.
Frá þessu greinir meðal annars ítalski félagsskiptafréttamaðurinn Fabrizio Romano sem segir að munnlegt samkomulag sé í höfn um samning til næstu tveggja ára, með möguleika á árs framlengingu. Amorim hefur verið atvinnulaus síðan hann var rekinn frá United í janúar eftir erfiða fjórtán mánuði í starfi. Hann mun nú stýra Milan í æfingaleik gegn United í Wroclaw í Póllandi þann 15. ágúst, viku áður en enska úrvalsdeildin hefst. 🚨🔴⚫️ BREAKING: Rúben Amorim to AC Milan as new head coach, HERE WE GO! 🇵🇹Verbal agreement done on deal valid until June 2028 plus option until June 2029.Amorim has accepted all conditions and will sign this week as new Milan manager. 🫱🏻🫲🏼 pic.twitter.com/j3ry7G3mYq— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) June 15, 2026 Amorim tekur við Milan af Massimiliano Allegri sem var rekinn í maí eftir að hafa mistekist að stýra liðinu til sætis í Meistaradeild Evrópu. AC Milan var með níu stiga forskot á fimmta sætið þegar liðið sigraði erkifjendurna í Internazionale í mars, en vann síðan aðeins þrjá af síðustu 10 leikjum sínum, fékk 10 stig og endaði að lokum stigi á eftir Como, sem hreppti síðasta Meistaradeildarsætið á lokadegi tímabilsins í ítölsku A-deildinni. Auk Amorims höfðu Mauricio Pochettino, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna, og Oliver Glasner sem hættur er með Sambandsdeildarmeistara Crystal Palace, verið orðaðir við Milan.
Ítalski boltinn Manchester United Enski boltinn Mest lesið Nýr leikmaður Arsenal á skotskónum í sínum fyrsta leik Fótbolti Markmaður Noregs forðast að fara í búðina eftir heimsmeistaramótið Fótbolti „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn á Opna breska Golf Fimmtán ára ungstirni spilaði sínar fyrstu mínútur fyrir Manchester United Fótbolti Real Madrid missti niður tveggja marka forskot gegn Alberti og félögum Fótbolti „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Íslenski boltinn Segir Richarlison vera tvístigandi hvort hann vilji vera áfram Fótbolti Rúnar og þrír leikmenn missa af leiknum við KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Nýr leikmaður Arsenal á skotskónum í sínum fyrsta leik Markmaður Noregs forðast að fara í búðina eftir heimsmeistaramótið Segir Richarlison vera tvístigandi hvort hann vilji vera áfram Leicester náði ekki að vinna Mikael Egil og félaga Ánægður að fá Mudryk til baka Fimmtán ára ungstirni spilaði sínar fyrstu mínútur fyrir Manchester United Lið Tómasar Bents tapaði eftir dramatískar lokamínútur Real Madrid missti niður tveggja marka forskot gegn Alberti og félögum Íslendingaslagur endaði jafn í Danmörku Rúnar og þrír leikmenn missa af leiknum við KR Rúnar fékk rautt: „Örstutt bræðiskast“ Chelsea staðfestir komu Danny Welbeck Uppgjörið: ÍBV - Fram 1-2 | Framarar unnu Þjóðhátíðarleikinn Enn skorar Emelía „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ „Rangur maður til að leiða þessi samtök“ „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ UEFA lýsir yfir vantrausti gagnvart Infantino Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Vinícius á förum? JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn „Verður skrýtið að sjá hann standa hinu megin“ Infantino hættir við allt saman Casemiro mættur til að hjálpa „guði fótboltans“ að vinna Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Arnór Gauti fékk sínar fyrstu mínútur í Króatíu „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Heiðdís hjálpar Söru Björk og félögum í Haukum Eru of fáar konur að starfa fyrir karlalið í knattspyrnu? Sjá meira