Viðskipti erlent

Beðið eftir sögu­legri skráningu SpaceX

Samúel Karl Ólason skrifar
Elon Musk, auðugasti maður heims, mun væntanlega auka auð sinn til muna í dag.
Elon Musk, auðugasti maður heims, mun væntanlega auka auð sinn til muna í dag. AP/Matt Rourke

SpaceX, geimferða- og tæknifyrirtæki Elons Musk, verður í dag skráð á markað vestanhafs eftir 75 milljarða dala hlutafjárútboð, sem var það stærsta í sögunni. Útboðið og skráning SpaceX gæti gert Musk, sem er fyrir auðugasti maður jarðarinnar og vel það, að fyrsta billjónamæringi heims (í dölum talið).

Félagið verður skráð í kauphöll Nasdaq sem SPCX.

Fyrirtækið hefur ekki enn skilað hagnaði en frá upphafi ársins 2025 til ársins 2026 tapaði það 8,7 milljörðum dala. Þrátt fyrir það hafa stærstu fjárfestingasjóðir heims lagt inn tilboð í stóra hluta þess hlutafjár sem var í boði.

Mestar tekjur félagsins koma frá Starlink gervihnattaþyrpingunni og eru miklar vonir bundnar við gervigreindardeild þess og Grok.

Hver hlutur kostaði 135 dali og var tilkynnt í gær að allir 555.555.555 hlutar sem voru í boði hefðu verið seldir, sem felur í sér að fyrirtækið er í heild metið, af forsvarsmönnum þess, á um 1,77 billjónir dala (tólf núll). Einhverjum greinendum þykir það allt of mikið.

Musk opnaði markaði vestanhafs í morgun með stuttu ávarpi. Þar grínaðist hann meðal annars með það að í upphafi átti hann frekar von á því að SpaceX myndi fara á hausinn. Þá sagði hann einnig að markmið fyrirtækisins væri að bjóða hverjum sem vildi að fara til tunglsins og jafnvel lengra út í sólkerfið.

Wall Street Journal segir útlit sé fyrir að þegar skráningu lýkur verði hver hlutur á um 170 til 175 dali. Ekki liggur fyrir nákvæmlega hvenær skráningin klárast.

Musk var nýverið metinn af Wall Street Journal á um 970 milljarða dala og er stór hluti auðæfa hans bundinn við hlutabréf í SpaceX, eða um 538 milljarðar.

Nú í morgun mátu greinendur Forbes auðæfi Musks á 983 milljarða dala. Þegar þetta er skrifað stendur auðurinn í 978 milljörðum.

Hlutafjárútboðið þykir líklegra en ekki til að gera koma honum yfir þúsund milljarða dala múrinn og þar með gera hann að fyrsta billjónamæringi heims (í dölum talið).

Sjá einnig: Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár

Forsvarsmenn fleiri fyrirtækja á sviði gervigreindar vinna hörðum höndum að því að koma þeim á markað. Næst á eftir SpaceX er Anthropic komið lengst í því ferli. Forsvarsmenn OpenAI vinna einnig að hlutafjárútboði og skráningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×