Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sindri Sverrisson skrifar 12. júní 2026 10:21 Elísabet Rut Rúnarsdóttir fagnaði með sínu fólki eftir að sigurinn sæti var í höfn. Getty/Isaac Wasserman Íslendingar stóðu sig frábærlega á sjálfu NCAA-meistaramóti bandarísku háskólanna, í Eugene í Oregon í gær, þar sem Elísabet Rut Rúnarsdóttir varð NCAA-meistari í sleggjukasti í annað sinn á ferlinum.
Spennan var gífurleg en Elísabet, sem keppir fyrir Texas State, náði efsta sætinu þegar hún kastaði 73,19 metra í þriðju tilraun. Anthonett Nabwe úr Minnesota hafði átt 72,68 metra kast í fyrstu tilraun og hún átti svo sitt besta kast í sjöttu og síðustu umferðinni, þegar hún virtist grýta sleggjunni nánast nákvæmlega jafnlangt og Elísabet hafði gert. Þetta lokakast Nabwe var upp á 73,15 metra, eða fjórum sentímetrum styttra en besta kast Elísabetar sem þar með gat fagnað vel eins og sjá má. SHE WON THE TITLE BY ONE INCH 😱😱😱Elisabet Runarsdottir captures her second career national title in the women's hammer throw with a lifetime-best of 240" 1". #NCAATF x 🎥 ESPN2 / @TXStateTrack pic.twitter.com/f48FhUiw9E— NCAA Track & Field (@NCAATrackField) June 12, 2026 Þær Nabwe og Elísabet voru þær einu sem náðu að kasta yfir 70 metrana og gerði Elísabet það þrisvar sinnum því sería hennar var: 69,80 m, 70,26 m, 73,19 m, 69,74 m, ógilt kast og 70,34 m. Elísabet Rut Rúnarsdóttir kastar hér í Eugene í gær þar sem hún varð NCAA-meistari.Getty/Isaac Wasserman Hún bætti sitt persónulega met um 30 sentímetra og færist nær Íslandsmeti Guðrúnar Karítasar Hallgrímsdóttur sem er 73,88 metrar. Báðar keppa þær á EM í Birmingham í ágúst þar sem afar fróðlegt verður að fylgjast með þeirra baráttu. Arndís komst einnig í úrslit Arndís Óskarsdóttir, sem keppir fyrir FIU, náði einnig afar góðum árangri á mótinu í Eugene í gær. Hún komst í níu manna úrslit, af 24 keppendum, og hafnaði að lokum í 8. sæti í spjótkasti, með 54,75 metra kasti. Arndís náði sínu besta kasti í lokaumferðinni en hafði einnig kastað 54,22 metra í annarri tilraun. Hún var afar nálægt 6. sæti en vantaði nokkuð upp á verðlaunasæti því bronsverðlaunahafinn kastaði 60,16 metra og sigurkastið var upp á 60,87 metra. Júlía Kristín Jóhannesdóttir varð svo í 23. sæti í 100 metra grindahlaupi en hún hljóp á 13,33 sekúndum í undanrásunum. Júlía er einnig skráð til leiks í sjöþraut á mótinu.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti ÍA – Víkingur R. | Toppliðið í bikarleik uppi á Skaga Íslenski boltinn Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Fleiri fréttir Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jökull rekinn frá Stjörnunni Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool ÍA – Víkingur R. | Toppliðið í bikarleik uppi á Skaga Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Elísa Lana tryggði Kristianstad jafntefli Kanada - Bosnía | Annar opnunarleikur HM Bein útsending: Icebox 10 Fékk aftur verðlaunasæti í Formúlu 1 sex dögum eftir harða refsingu Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM „Hafið þið ekki horft á leikina?“ Ísland og Danmörk mætast í hnefaleikahringnum í kvöld Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Almar ekki í kassanum Trump mætir ekki í kvöld Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Mourinho sækir fyrsta leikmanninn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Ferðaðist ekki með liðinu Hver er flottasta treyjan á HM? Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Þá roðnaði Beckham Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Sjá meira