Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Agnar Már Másson skrifar 11. júní 2026 12:42 Lögmannastofur kanna hvort grundvöllur sé fyrir málsókn gegn Oculis. Vísir/Vilhelm Lögmannsstofur í Bandaríkjunum athuga nú hvort grundvöllur sé fyrir því að höfða mál gegn Oculis fyrir hönd hluthafa vegna hugsanlegra verðbréfasvika eða annarra ólöglegra viðskiptahátta. Slíkar rannsóknir eru vissulega algengar en ein lögmannastofa bendir á að stjórnendur hafi mögulega farið geyst með yfirlýsingar um lyfið OCS-01 sem reyndist svo ekki ná settum árangri í lyfjarannsókn.
Nokkrar lögmannsstofur birtu tilkynningar á dögunum þar sem þær leita að hluthöfum sem töpuðu miku fé þegar verðbréf í Oculis hrundu um mánaðamótin í kjölfar þess að líftæknifyrirtækið tilkynnti um slæmar niðurstöður tveggja rannsókna, svokallaðra DIAMOND-rannsókna, á lyfjunum OCS-01. Kanna þær hvort hægt sé að ráðast í rannsókn, og svo hugsanlega hóplögsókn, snýr að því hvort Oculis og stjórnendur þess hafi hugsanlega gerst uppvísir um verðbréfasvik eða aðra ólöglega viðskiptahætti, þá einkum hvort félagið hafi farið of geyst með yfirlýsingar um lyfið áður en niðurstöður úr prófum lágu fyrir. Slíkar rannsóknir eru vissulega algengar í Bandaríkjunum og einkum á sviði líftækni, þar sem fjórða hvert verðbréfasvikamál í Bandaríkjunum varðar vísindafyrirtæki. Lögmannastofan SueWallSt. bendir aftur á móti á í tilkynningu í Financial Times að Riad Sherif, forstjóri Oculis, hafi á ráðstefnu J.P. Morgan í janúar haldið því fram að fram að þeir „vita að það virkar“ og að lyfið væri „samþykkt“ „hvað líffræðina varðar.“ Þegar tilkynnt var um vonbrigðin í byrjun júní hrundi hlutabréfaverð Oculis bæði á bandarískum markaði en einnig íslenskum, með tilheyrandi tapi fyrir hlutabréfasjóði á Íslandi.
Oculis Bandaríkin Mest lesið Bændur æfir vegna pitsaostsins Viðskipti innlent Nauðasamningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna Viðskipti innlent Fær ekki endurgreitt eftir misheppnaða norðurljósaferð Neytendur Breytt fyrirkomulag og samskiptastjórinn kveður Viðskipti innlent Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Viðskipti innlent Kristinn Örn tekur við Teya á Íslandi Viðskipti innlent Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi Atvinnulíf Jóhanna tekur við sem forstjóri Viðskipti innlent Taki stöðuna alvarlega og hækki ekki verð umfram verðbólgumarkmið Neytendur Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kristinn Örn tekur við Teya á Íslandi Nauðasamningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Bændur æfir vegna pitsaostsins Breytt fyrirkomulag og samskiptastjórinn kveður Jóhanna tekur við sem forstjóri Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Ungir fatasalar möluðu gull Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Sjá meira