Viðskipti innlent

Hopp tekur raf­ræn öku­skír­teini í notkun í appinu

Birgir Olgeirsson skrifar
Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp. 
Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp.  Vísir

Hopp hefur innleitt nýja lausn í appi sínu sem gerir notendum kleift að auðkenna sig með rafrænu ökuskírteini þegar þeir skrá sig fyrir deilibílaþjónustu fyrirtækisins.

Samkvæmt tilkynningu frá Hopp er fyrirtækið fyrst á Íslandi til að samþykkja rafræn ökuskírteini sem hluta af skráningar- og auðkenningarferli notenda.

Með breytingunni þurfa notendur ekki lengur að hlaða upp myndum af hefðbundnu ökuskírteini eða fara í gegnum lengra staðfestingarferli. Þess í stað geta þeir auðkennt sig beint í appinu og fengið aðgang að deilibílum Hopp á skemmri tíma.

„Við erum gríðarlega stolt af því að vera fyrst á Íslandi til að innleiða þessa lausn. Markmið okkar hefur alltaf verið að gera samgöngur einfaldari, aðgengilegri og snjallari,“ segir Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp Reykjavíkur, í tilkynningunni.

Hún segir rafræn ökuskírteini gera notendaupplifunina einfaldari og hnökralausari.

Hopp segir innleiðinguna lið í áframhaldandi þróun stafrænnar þjónustu fyrirtækisins. Lausnin eigi bæði að einfalda aðgengi að deilibílum og gera staðfestingu notenda öruggari og skilvirkari.

Deilibílar Hopp hafa verið í boði sem sveigjanlegur valkostur við einkabílinn. Með nýju lausninni segir fyrirtækið að notendur sem uppfylla skilyrði geti nú auðkennt sig í appinu og hafið notkun á örfáum mínútum.

Hopp rekur 105 deilibíla en þessi þjónusta hefur vaxið jafnt og þétt síðan fyrirtækið kynnti hana til leiks fyrir þremur árum en þá voru þrír deilibílar í boði.

Kristín Hrefna segir umgengni um þessa deilibíla með ágætum og Hopp þrífi bílana reglulega. En um þá gilda reglur sem þarf að fylgja annars eru leigutakar sektaðir. Ef þeir skilja rusl eftir í bílnum eru þeir sektaðir og ef einhver kemur að bíl þar sem umgengnin er ekki eftir reglum getur viðkomandi tilkynnt það til Hopp og fyrri leigutaki fær sekt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×