Skilja vináttuna eftir utan vallar Ágúst Orri Arnarson skrifar 7. júní 2026 12:04 Alexander Zverev og Flavio Cobolli mætast í úrslitaleik Opna franska. Í úrslitaleik Opna franska meistaramótsins í tennis munu góðir vinir mætast. Alexander Zverev og Flavio Cobolli ætla hins vegar að skilja vináttuna eftir utan vallar.
Þjóðverjinn Zverev og Ítalinn Cobolli urðu miklir mátar þegar þeir kepptu saman fyrir lið Evrópu gegn Bandaríkjunum í Laver bikarnum árið 2024. Zverev talaði fallega um Cobolli eftir undanúrslitin. Hann sagði vináttu þeirra að sjálfsögðu byggja mikið á tennis en talaði einnig um sameiginlegan áhuga þeirra á bíómyndum. Feður þeirra, sem eru einnig þjálfarar þeirra, eru einnig mjög góðir vinir. „Hann er frábær tennisspilari og frábær náungi. Mér líkar vel við hann og föður hans líka, þeir eru góðir menn. Þetta verður fyrsti úrslitaleikurinn hans og ég samgleðst honum að hafa náð svona langt,“ sagði Zverev en hann ætlar ekki að hleypa vini sínum neitt lengra. „Þegar þú spilar úrslitaleik á risamóti er ekki erfitt að leggja vináttuna til hliðar. Við erum komnir á stærsta sviðið, við munum reyna að eyðileggja hvor fyrir öðrum og það er allt í góðu.“ Þetta verður í þriðja sinn sem þeir mætast en Zverev og Cobolli hafa unnið sitt hvora viðureignina. Zverev þykir sigurstranglegri, enda efsti maður heimslistans á mótinu eftir að Jannik Sinner og Novak Djokovic duttu út. Ríkjandi meistarinn Carlos Alcaraz gat ekki tekið þátt vegna meiðsla. Þjóðverjinn er hins vegar illa brenndur af úrslitaleikjum síðustu ára. Hann missti niður tveggja setta forystu í úrslitaleik Opna bandaríska árið 2020 og lenti aftur í því að missa niður forystu í úrslitaleik Opna franska árið 2024. Úrslitaleikur Opna franska meistaramótsins hefst klukkan 13:00 í beinni útsendingu á Eurosport stöðinni sem fylgir með sportáskrift að Sýn .
Tennis Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Fleiri fréttir Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Hágrét þegar fyrsti risatitillinn var í höfn Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Andrea og Ragnhildur enduðu jafnar Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Skilja vináttuna eftir utan vallar Ollie Kane kynntur til leiks Skilur ekki hvers vegna hann keyrir svona hægt Skoraði sneggstu þrennu sögunnar í sturluðum sigri „Hann breytti kúlturnum“ Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Dagskráin í dag: Heldur Antonelli uppteknum hætti? Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Sjá meira