Viðskipti innlent

Hundruðum sagt upp í maí

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Hilton Reykjavík Nordica er með stærri hótelum landsins.
Hilton Reykjavík Nordica er með stærri hótelum landsins. Vísir/Vilhelm

Vinnumálastofnun bárust fjórar tilkynningar um hópuppsagnir í maí. Alls var 370 manns sagt upp störfum.

Alls var 270 starfsmönnum sagt upp í gistiþjónustu en um er að ræða hópuppsögn Iceland Hotel Collection by Berjaya. Uppsagnirnar voru liður í tilfærslu hótelanna Hilton Nordica og Natura yfir til Íslandshótela. Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela, sagði í kjölfar uppsagnanna að hann gerði ráð fyrir því að ráða allt fólkið aftur til starfa.

„Auk þess var 26 starfsmönnum tengt ferðaþjónustu sagt upp störfum, 37 starfsmönnum í sjávarútvegi og 37 í fjármálastarfsemi,“ segir í fréttatilkynningu Vinnumálastofnunar.

37 starfsmönnum Rapyd á Íslandi var sagt upp. Þar á gervigreindin að leysa af hólmi fjölda starfsmanna, miðað við bréf Arik Shtilman, forstjóra Rapyd á heimsvísu.,

Veistu meira um málið? Ef þú hefur upplýsingar um hópuppsagnir eða þau fyrirtæki sem réðust í uppsagnir getur þú sent okkur fréttaskot hérna


Vinnumálastofnun bárust engar upplýsingar um hópuppsagnir í apríl en þrjár í mars þar sem níutíu var sagt upp störfum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×