Viðskipti innlent

Hvernig get ég forðast netsvik?

Björn Berg skrifar
Björn Berg Gunnarsson svarar lesendum Vísis aðra hverja viku. Hægt er að senda honum spurningu í spurningaforminu hér fyrir neðan.
Björn Berg Gunnarsson svarar lesendum Vísis aðra hverja viku. Hægt er að senda honum spurningu í spurningaforminu hér fyrir neðan. Vísir/Vilhelm

Sextugur karlmaður spyr: „Nú virðist mikið um að peningar séu sviknir út úr fólki á netinu og það er ekki góð tilhugsun að lenda í því. Hvað get ég gert til að forðast þessi svik?“

Það er enginn skortur á fólki sem vill ræna aðra. Því miður hafa tækninýjungar veitt þeim betri tæki og tól og tilraunum til svika virðist fjölga dag frá degi.

Því ættum við að leggja við hlustir og fylgjast með þeim tilkynningum sem berast frá lögreglunni og bönkum þar sem bæði er vísað með almennum hætti í varnir gegn svikum en einnig í einstaka tilraunir sem borið hefur á. Í áhugaverðu viðtali á Vísi á dögunum segir Guðmundur Karl Karlsson hjá Defend Iceland að þörf sé á vitundarvakningu hér á landi þar sem svik gagnvart einstaklingum verði sífellt trúverðugri og þrjótar geti jafnvel sent fólki tölvupósta frá fyrirtækjum sem brotist hefur verið inn í.

Nýleg dæmi

Flest höfum við væntanlega fengið skilaboð í símann, eða í tölvupósti um að ganga þurfi frá greiðslu eða staðfestingu vegna póstsendingar. Glæpamenn þykjast vera traustar stofnanir eða fyrirtæki og freista þess að veiða okkur inn á svikasíður þar sem auðvelt getur reynst að ræna okkur. Nýlega varaði Íslandsbanki við tölvupóstum sem sendir voru í nafni bankans, en ætlaðir til að stela fjármunum af viðskiptavinum og ekki er langt síðan fjölmargir töldu sig hafa fengið fyrirspurn frá Skattinum sem einnig var tilraun til ráns.

Mikil og góð aðstoð í boði

Sem betur fer er vel fylgst með hér á landi og auðvelt að sækja gagnlegar upplýsingar um hvernig verjast megi netsvikum. Nefna má ljómandi góðar fræðslusíður CERT-IS, Netvís, lögreglunnar og SA. Víða er auk þess boðið upp á námskeið og aðstoð í þeim efnum. Þá er mikilvægt að hafa strax samband við bankann sinn eða eftir atvikum lögregluna ef grunur leikur á að um svik sé að ræða og þá viljum við bregðast við eins fljótt og auðið er.

Hvernig eigum við að hegða okkur?

Við verðum fyrst og fremst að átta okkur á því að heimurinn hefur breyst. Hann er mun flóknari, hættulegri og að sama skapi auðvitað leiðinlegri þegar kemur að öryggi okkar á netinu. Þessi nýi stafræni heimur krefst töluverðrar fyrirhafnar af okkur og við erum nú þegar upptekin. Það er ekkert ánægjulegt við það að þurfa að halda utan um fjölmörg lykilorð, skrá sig ítrekað inn á síður og í kerfi og vera gagnrýnin og efins um allt og alla en við verðum að kyngja því, svona er þetta bara. 

Ef fyrirtæki sendir skilaboð og biður um að gengið sé frá greiðslu, staðfestingu eða öðru smellum við til dæmis ekki á hlekki í smáskilaboðum eða tölvupóstum, heldur förum sjálf beint inn á vefsíður þeirra og göngum úr skugga um að pósturinn sé sannarlega frá viðkomandi aðila. Ég er sjálfur nær alveg hættur að svara símtölum að utan og nú eru glæpamenn, með aðstoð gervigreindar, farnir að hringja í okkur á íslensku, úr íslenskum símanúmerum.

Það er verið að reyna að ræna þig

Vefurinn er hættulegur og það er verið að reyna að ræna okkur öll. Við þurfum að temja okkur vönduð vinnubrögð og varast fljótfærni, ekki síst í símanum. Ekki samþykkja auðkenningarbeiðni ef þú veist ekki hvaðan hún kemur. Ekki samþykkja skilmála að óþörfu og ekki bæta neinu vafasömu inn á símann þinn. Með beinu aðgengi að hverju og einu okkar, svo sem í gegnum símann, er reynt að narra okkur í viðskipti með alls kyns gylliboðum, selja okkur áskriftir sem erfitt reynist að segja upp og jafnvel spjalla við okkur undir fölsku flaggi.

Þetta er sannarlega ekki þægileg tilhugsun. Ég hvet þig þó til að taka þér góðan tíma í að lesa þér vandlega til um varnir gegn netsvikum og tryggja öryggi þig eins og mögulegt er. Þannig dregur þú stórlega úr líkunum á fjárhagslegu tjóni.


Tengdar fréttir

Hvað á að gera við fermingarpeningana?

40 ára kona spyr: „Við erum að ferma dóttur okkar og veltum fyrir okkur hvað við eigum að gefa henni og hvað gera eigi við þá peninga sem hún mun fá að gjöf?“

Hvernig safna ég fyrir húsnæðis­kaupum?

30 ára karlmaður spyr: „Blessaður Björn, við konan erum að flytja til Íslands frá Danmörku og viljum kaupa okkur hús, helst utan höfuðborgarsvæðisins. Við þurfum því að safna okkur töluverðum pening. Spurning mín til þín er því hvað þurfum við að hafa í huga? Eru einhver tips & trick fyrir fyrstu kaupendur? Eigum við að safna pening á sparnaðarreikning (sem í dag hefur góða vexti)? Allar hugmyndir vel þegnar. Bestu kveðjur.”

Hvernig safna ég fyrir húsnæðis­kaupum?

30 ára karlmaður spyr: „Blessaður Björn, við konan erum að flytja til Íslands frá Danmörku og viljum kaupa okkur hús, helst utan höfuðborgarsvæðisins. Við þurfum því að safna okkur töluverðum pening. Spurning mín til þín er því hvað þurfum við að hafa í huga? Eru einhver tips & trick fyrir fyrstu kaupendur? Eigum við að safna pening á sparnaðarreikning (sem í dag hefur góða vexti)? Allar hugmyndir vel þegnar. Bestu kveðjur.”






Fleiri fréttir

Sjá meira


×