Sport

Óskar Hrafn á hælana?

Valur Páll Eiríksson skrifar
Óskar Hrafn framlengdi samning við KR í dag.
Óskar Hrafn framlengdi samning við KR í dag. Vísir

Það er risa helgi fram undan í boltanum hér heima og úti. Heil umferð fer fram í bæði Bestu deild karla og kvenna. Úrslit eru í Meistaradeild Evrópu og landsleikur í Japan.

Valur Páll Eiríksson, Aron Guðmundsson og Stefán Árni Pálsson fóru yfir sviðið í föstudagsþætti Besta sætisins.

Nýr samningur Óskars Hrafns Þorvaldssonar í Vesturbæ var til umræðu og metsala liðsins á ungum leikmanni.

Tveir leikir fara fram í Bestu deild karla í kvöld og einn í Bestu deild kvenna. Umferðirnar klárast á laugardag og sunnudag.

Spáð var í spilin fyrir það allt saman sem og úrslitaleik Meistaradeildarinnar milli PSG og Arsenal sem er á óvenjulegum tíma á laugardag.

Þetta og fleira til í þætti dagsins sem er í spilaranum og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×