Viðskipti innlent

Kjörin for­maður SÍA

Atli Ísleifsson skrifar
Anna Kristín Kristjánsdóttir og Selma Rut Þorsteinsdóttir.
Anna Kristín Kristjánsdóttir og Selma Rut Þorsteinsdóttir. SíA

Selma Rut Þorsteinsdóttir, yfirsköpunarstjóri Pipar\TBWA, var kjörin formaður Sambands íslenskra auglýsingastofa (SÍA) á aðalfundi samtakanna sem fram fór í gær.

Í tilkynningu segir að hún taki við af Önnu Kristínu Kristjánsdóttur, stjórnarformanni Hvíta hússins, sem gegnt hafi formennsku undanfarin ár. Selma hafi gegnt ýmsum trúnaðarstörfum á vettvangi auglýsinga- og markaðsmála og setið í stjórn SÍA undanfarin ár.

„Það er mikill heiður að fá að leiða SÍA á næsta starfsári. Auglýsinga- og markaðsgeirinn er að breytast hratt með tilkomu gervigreindar, breyttra neysluvenja og meiri krafna um árangur, en á sama tíma hefur það mannlega aldrei verið mikilvægara. Það eru þessir ólíku pólar sem við í auglýsingabransanum erum að kljást við á hverjum degi. Ég hlakka mikið til að vinna áfram með stjórninni og stofunum að veg og vanda greinarinnar í heild sinni,“ er haft eftir Selmu.

Samband íslenskra auglýsingastofa eru hagsmunasamtök auglýsingastofa á Íslandi. Aðild að SÍA eiga Brandenburg, ENNEMM, Hér & nú, Hvíta húsið, Kontor, PEEL og Pipar\TBWA. SÍA er samstarfsfélag Félags atvinnurekenda og fullgildur aðili að EACA, Evrópusamtökum samskiptastofa.

Auk Selmu sitja í stjórn SÍA Anna Kristín Kristjánsdóttir frá Hvíta húsinu, Hrafn Gunnarsson frá Brandenburg, Guðjón Ólafsson frá Hér & nú og Jóhannes Karl Sigursteinsson frá ENNEMM. Alex Jónsson frá Kontor er varamaður stjórnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×