Tottenham bætir í vörnina Valur Páll Eiríksson skrifar 29. maí 2026 13:17 Senesi og Robertson virðast báðir vera á leið til Tottenham. Samsett/Getty Tottenham bætir við vörn liðsins eftir að liðið bjargaði sér frá falli á lokadegi ensku úrvalsdeildarinnar. Útlit er fyrir að tveir reynsluboltar úr ensku úrvalsdeildinni komi frítt til liðsins.
Spurs er sagt nálægt því að ganga frá samkomulagi við Marcos Senesi, argentínskan varnarmann Bournemouth, en samningur hans er að renna út á suðurströndinni. Senesi hefur einnig verið orðaður við Barcelona meðal annarra en samkvæmt breskum miðlum er samkomulag um skipti hans til Tottenham gott sem í höfn. Tottenham sé þá einnig að fá Andrew Robertson frá Liverpool. Robertson hefur verið máttarstólpi í frábæru Liverpool-liði síðasta áratuginn eða svo en hlutverk hans fór minnkandi á nýliðinni leiktíð eftir komu Milos Kerkez frá Bournemouth. Greint var frá því fyrir þónokkrum vikum að Robertson færi til Tottenham, en þó aðeins ef liðið héldi sér uppi í deildinni. Celtic og Juventus hafa einnig verið orðuð við skoska bakvörðinn en hann er sagður hafa þegar náð samkomulagi við Spurs fyrr í vor. Robertson er 32 ára gamall vinstri bakvörður og mun leiða Skotland sem fyrirliði á komandi heimsmeistaramóti í Norður-Ameríku. Senesi er 29 ára gamall miðvörður sem hefur leikið einkar vel í vörn Bournemouth frá komu hans frá Feyenoord árið 2022. Hann missti af sæti í landsliðshópi Argentínu fyrir komandi heimsmeistaramót.
Tottenham Hotspur Enski boltinn Liverpool FC AFC Bournemouth Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Steig á liggjandi mótherja en ekkert dæmt Fótbolti Argentína nú þegar undir rannsókn Fótbolti Giskaði á réttan sigurvegara HM í fimmta skiptið í röð Fótbolti Drifu sig strax í að rífa upp grasið af HM-vellinum Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira