Sport

Til­finninga­ríkur sigur Littler

Andri Broddason skrifar
Littler létt eftir sigur í úrvalsdeildinni í pílukasti
Littler létt eftir sigur í úrvalsdeildinni í pílukasti Andrew Redington/Getty Images

Luke Littler vann úrvalsdeildina í pílukasti í gærkvöldi. Hann vann nafna sinn, Luke Humphries, í æsispennandi úrslitaleik þar sem úrslitin réðust á einum legg. Leikurinn endaði 11-10.

Sigurganga undrabarnsins Luke Littler heldur áfram með sigri á úrvalsdeildinni í pílukasti. Með sigrinum er Littler handhafi átta risatitla í einu.

Þessi sigur skipti miklu máli fyrir Littler en hann hugsaði um að draga sig úr keppni vegna framkomu áhorfenda. Það var oft baulað á Littler og var það farið að taka sinn toll á unga kappanum.

Littler nefndi að hann vildi ekki halda áfram eftir úrvalsdeildarkeppnina í Brighton. Þar náði baul áhorfenda hámarki að hans mati.

Ástæðan fyrir því að byrjað var að baula á hann var vegna ósátta Littler og Gian van Veen í Manchester. Þá virtist Littler fagna þegar van Veen gat unnið leikinn en náði því ekki. Van Veen endaði á að vinna þann leik en áhorfendur voru ekki ánægðir með stælana í Littler.

„Ég þurfti að rífa mig upp eftir erfiða leiki og erfið kvöld,“ sagði Littler eftir sigurinn í gærkvöldi.

Þetta er í þriðja skipti í röð sem Littler og Humphries eigast við í úrslitaleik úrvalsdeildarinnar. Humphries vann titilinn í fyrra en Littler núna og árið 2024.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×