Viðskipti innlent

Fá að kaupa Pei og Motus

Agnar Már Másson skrifar
Heildarvirði GMÍ í viðskiptunum nemur 3.500 milljónum króna.
Heildarvirði GMÍ í viðskiptunum nemur 3.500 milljónum króna. Síminn

Samkeppniseftirlitið hefur gefið grænt ljós á kaup Símans á Greiðslumiðlun Íslands ehf., sem á og rekur greiðslulausnina Pei og innheimtufyrirtækið Motus.

Í tilkynningu frá Símanum segir að Samkeppniseftirlitið (SKE) hafi tilkynnt Símanum í dag að rannsókn væri lokið á kaupum Símans á Greiðslumiðlun Íslands ehf., sem Síminn hf. tilkynnti opinberlega um þann 23. október sl.

Með hliðsjón af fyrirliggjandi gögnum taldi Samkeppniseftirlitið ekki tilefni til íhlutunar vegna kaupanna og hefur þar með lokið meðferð málsins, segir í kauphallartilkynningu Símans.

Í samræmi við kaupsamning megi reikna með að framkvæmd viðskiptanna eigi sér stað á næstu vikum, að öðrum skilyrðum samningsins uppfylltum. Síminn hf. muni upplýsa þegar viðskiptin hafa verið frágengin.

Heildarvirði GMÍ í viðskiptunum nemur 3.500 milljónum króna. Síminn áætlaði, þegar tilkynnt var um kaupin í október, að með kaupunum myndu tekjur aukast á ársgrundvelli um ríflega 2.600 milljónir króna, EBITDA um yfir 500 milljónir króna og lánasafn félagsins stækka um að lágmarki 1.000 milljónir króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×