Mikil sorg á Alþingi Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 28. maí 2026 11:52 Hildur Sverrisdóttir hafði fylgst vel með hreiðurgerðinni. Þrösturinn sem legið hefur á eggjum í Alþingisgarðinum er horfinn úr hreiðrinu ásamt eggjunum fjórum. Þingkona segir málið hryggja sig meira en eðlilegt sé, svartur köttur sem heldur til í garðinum liggi undir grun. „
Það hryggir mig meira en væri eðlilegt að þurfa að tilkynna að þrastarfuglinn sem hefur legið á eggjum sinum hjá Alþingishúsinu er horfinn úr hreiðri sínu ásamt eggjunum fjórum,“ skrifar Hildur Sverrisdóttir þingkona Sjálfstæðisflokksins á samfélagsmiðla. Fréttastofa heimsótti þingið í vikunni og ræddi við Hildi um hreiðrið, sem nú er horfið á braut. Hreiðrið er staðsett í brunastiga sem liggur út frá matsal Alþingis og er mikið notaður á góðviðrisdögum. Þingmönnum var birt blátt bann við umferð um stigann svo að fuglinn fengi næði til að koma ungum sínum til lífs, en allt kom fyrir ekki. „Við urðum vör við hann fyrir um viku síðan. Forseti Alþingis gaf strax út mjög snaggaralega fyrirskipan um að allt starfsfólk þingsins legði niður störf til þess að búa til þetta skilti hér svo að hún fengi allt það næði sem hún þyrfti,“ sagði Hildur við fréttastofu. Hún segir nú á samfélagsmiðlum að þingmenn hafi grun um hvað hafi átt sér stað. „Svarti kötturinn sem heldur til í Alþingisgarðinum liggur sterklega undir grun um þennan glæp. Við munum sakna þeirra,“ segir Hildur. Könnunarferðir fréttastofu í garðinn undanfarið renna stoðum undir grun þingmannsins. Svartur köttur í garðinum vakti mikla athygli á Facebook hópnum Spottaði kött í júlí í fyrra þegar hann spókaði sig um fyrir aftan fréttamann.
Mest lesið Mikil sorg á Alþingi Lífið Hvað hafa þau að fela? Lífið Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Tónlist Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Samstarfsfélagar að elskhugum Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Lífið Emily in Paris-stjarna látin Lífið Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Lífið Buxur með opið klof vöktu athygli Tíska og hönnun Fleiri fréttir Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð Sjá meira