Viðskipti innlent

Verð­bólga hjaðnar minna en vonir stóðu til

Árni Sæberg skrifar
Matarkarfan vegur þungt í verðbólgumælingum Hagstofunnar.
Matarkarfan vegur þungt í verðbólgumælingum Hagstofunnar. Vísir/Vilhelm

Verðbólga mælist 5,1 prósent í maí, miðað við 5,2 prósent í apríl. Lækkun virðisaukaskatts hafði 0,32 prósenta áhrif á vísitölu neysluverðs, til lækkunar.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Hagstofunnar. Hún er svohljóðandi:

„Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í maí 2026, er 684,3 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,07% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 546,3 stig og lækkar um 0,13% frá apríl 2026.

Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) jókst um 0,6% (áhrif á vísitöluna 0,13%). Verð á dísel lækkaði um 7,0% (-0,07%) og verð á bensíni um 7,3% (-0,14%).

Þann 1. maí var virðisaukaskattur á dísel og bensín lækkaður úr 24% í 11%. Ef verð á þessum eldsneytisgjöfum er reiknað með 24% virðisaukaskatti í stað 11% væri verð á dísel 3,9% hærra en fyrir mánuði (áhrif á vísitölu 0,04%) og verð á bensíni 3,6% hærra (0,07%). Heildaráhrif virðisaukaskattsbreytingarinnar á vísistölu neysluverðs eru því metin um 0.32% til lækkunar.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,1% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,6%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í maí 2026, sem er 684,3 stig, gildir til verðtryggingar í júlí 2026.“

Greiningaraðilar höfðu ýmist spáð því að verðbólga myndi hjaðna milli mánaða eða standa í stað. Til að mynda spáði greiningardeild Landsbankans að hún myndi mælast 4,9 prósent í maí.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×