Buxur með opið klof vöktu athygli Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 28. maí 2026 09:00 Egill Andra vakti athygli fyrir buxurnar sínar á Grímunni. Instagram „Þessar buxur eru magnaðar því þær eru með opið í klofinu og yfir rassinn. Þetta hylur allt nema það sem buxur eiga að hylja,“ segir leikstjórinn Egill Andra sem vakti athygli fyrir klæðaburð sinn á Grímunni í vikunni. Egill er 24 ára gamall og tók við verðlaunum fyrir hönd leikarans Árna Péturs sem var staddur á Spáni.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Egill getið af sér gott orð í leikstjórasætinu og er nú að vinna að verkinu Ástarseiði Bergamólíó Kroppinbak þar sem áhrifavaldastjarnan Gugga í gúmmíbát fer með sitt fyrsta hlutverk á sviði. Hann var dramatúrgur í verkinu Skammarþríhyrningurinn sem Gréta Kristín leikstýrði og Árni Pétur fór með aðalhlutverk í. „Hópurinn úr Skammarþríhyrningnum var með atriði á Grímunni og ég steig inn sem Árni Pétur. Ég og vinkona mín máluðum nafnið hans á hvítan bol með akrýl málningu þannig ég gæti bersýnilega verið hann og stutt hann þetta kvöld,“ segir Egill en hann er sömuleiðis að leikstýra Götuleikhúsinu í sumar og hafði takmarkaðan tíma til að setja saman klæðnað fyrir kvöldið. „Ég þurfti að hlaupa niður í Þjóðleikhús fyrir sjónvarpsæfinguna og var ekki með neitt almennilegt fitt tilbúið fyrir athöfnina. Ég var þó búinn að hugsa þetta eitthvað og áttaði mig á hvað mér finnst fötin úr Skammarþríhyrningnum ótrúlega flott en Eva Berg búningahönnuður bjó þau til. Ég ákvað því að nýta mér búning úr sýningunni en afbakaði klæðnaðinn aðeins, setti þetta saman með bolnum og fannst upplagt að skarta þessum skemmtilegu buxum. Það er gaman að nýta þennan sviðslistavettvang til þess að vera í búning sem verður að tískuvöru.“ Buxurnar eru mjög óhefðbundnar!Instagram Árni Pétur rokkaði sömu buxur í sýningunni. „Skammarþríhyrningurinn er auðvitað sýning um hinseginleika og anti-hinseginleika. Þetta var líka rannsakað í gegnum klæðaburðinn og öfug föt, það er að segja föt sem hylja ekki eitthvað sem á að hylja. Þessar buxur eru magnaðar því þær eru með opið í klofinu og yfir rassinn. Þetta hylur allt nema það sem buxur eiga að hylja sem er svolítið skemmtilegur viðsnúningur og frábær hugmynd hjá Evu.“ Egill er í skýjunum með kvöldið og auðvitað hæstánægður með sigur Árna Péturs. „Stemningin var alveg ótrúlega góð, svo var æðislegt DJ sett um kvöldið og rosalegt stuð. Ég sagði við Magnús Geir þjóðleikhússtjóra að það væri upplagt að breyta leikhúsinu stundum í partýstað, það yrði allavega besti klúbburinn í bænum ef svo yrði.“
Grímuverðlaunin Tíska og hönnun Samkvæmislífið Leikhús Tengdar fréttir Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Leikhúsgagnrýnandi Vísis segir stóra skandalinn á Grímunni vera að Benedict Andrews hafi ekki verið valinn leikstjóri ársins þegar Óresteia var valin bæði sýning og leikrit ársins. Ótvíræðu tapliðin í ár séu aðstandendur Ormstungu og Borgarleikhúsið meðan óvæntur sigurvegari sé óperan Sæmundur fróði. 27. maí 2026 12:06 Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Harmleikurinn Óresteia og barnasýningin Lína langsokkur hlutu flest verðlaun á Grímunni í ár eða fjögur verðlaun hvor. Óresteia var valin sýning og leikrit ársins og Agnes Wild var valin leikstjóri ársins fyrir Línu Langsokk. Söngleikurinn Ormstunga sem var tilnefndur til tólf verðlauna hlaut engin. 26. maí 2026 22:19 Mest lesið Mikil sorg á Alþingi Lífið Hvað hafa þau að fela? Lífið „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Lífið Samstarfsfélagar að elskhugum Lífið Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Tónlist Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Tónlist Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Lífið Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi Lífið Fleiri fréttir Buxur með opið klof vöktu athygli Hver prjónuð peysa sendi skýr skilaboð til þolenda ofbeldis „Auðveldara hér að vera bara eins og maður er“ Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Nýjasta sumartrendið í boði Travolta Minnist föður síns með verðmætu verkefni Aðalpæjur landsins komu saman Dreifði ættjarðarástinni til London og Parísar Gellur elska hönnun Tíundi bekkur slys í heild sinni Fimmhundruð manns í örlagaríku teiti Gusugleði í Vesturbæjarlaug Mikil hvatning ef fólk hlær að fötunum Þessi sigruðu Met Gala Met Gala-bölvunin alræmda Hittu sjálfan Jacquemus í New York Gjörningar og gleði á HönnunarMars Myndaveisla: Sjóðheit tískusýning í Hörpu Innsýn í heim fatahönnuða framtíðarinnar Týndi strax 120 þúsund króna sokkum Varð að vera flottastur í eigin teiti „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Gabbana stígur til hliðar hjá Dolce & Gabbana Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Kröfuharður og með öll smáatriði á lás Sjá meira
Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Leikhúsgagnrýnandi Vísis segir stóra skandalinn á Grímunni vera að Benedict Andrews hafi ekki verið valinn leikstjóri ársins þegar Óresteia var valin bæði sýning og leikrit ársins. Ótvíræðu tapliðin í ár séu aðstandendur Ormstungu og Borgarleikhúsið meðan óvæntur sigurvegari sé óperan Sæmundur fróði. 27. maí 2026 12:06
Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Harmleikurinn Óresteia og barnasýningin Lína langsokkur hlutu flest verðlaun á Grímunni í ár eða fjögur verðlaun hvor. Óresteia var valin sýning og leikrit ársins og Agnes Wild var valin leikstjóri ársins fyrir Línu Langsokk. Söngleikurinn Ormstunga sem var tilnefndur til tólf verðlauna hlaut engin. 26. maí 2026 22:19