Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Ágúst Orri Arnarson skrifar 27. maí 2026 10:29 Rithöfundurinn Ragnar Jónasson fór að einbeita sér að skrifum en Sigurður Bond hélt tryggð við fyrirliðann Bruno Fernandes og vann stjörnudeildina. sýn / getty Margir landsfrægir einstaklingar spila Fantasy leik ensku úrvalsdeildarinnar en Sigurður Gísli Bond er besti þykjustu þjálfarinn af þeim öllum.
Strákarnir í Fantasýn hlaðvarpinu tóku eitt „stjörnulið“ fyrir í hverri viku. Meðal þeirra sem rötuðu á listann voru Teitur Örlygsson, Logi Bergmann, Guðlaugur Þór Þórðarson, Eyjólfur Sverrisson og Sindri Jensson. Það kemur kannski ekki á óvart að stigahæsta stjörnuliðinu var stýrt af manni sem fjallar um fótbolta en Siggi Bond starfar sem sérfræðingur hjá Dr. Football og DocZone á Sýn Sport. Bond var mun stigahærri en næstu menn á listanum, Sölvi Tryggvason og Benedikt Gíslason. Rithöfundurinn Ragnar Jónasson var lengi vel í baráttunni og var um tíma efstur á Íslandi, en hætti síðan að gera félagaskipti í síðustu umferðunum og féll niður listann. „Hann hefur bara náð sínu markmiði, tekið gott skjáskot af sér í fyrsta sæti og haldið síðan áfram að skrifa metsölubækur,“ sögðu Albert í lokaþætti Fantasýn um frammistöðu Ragnars. „Hann hefur google-að hvað maður fær í verðlaun fyrir að vinna þetta og ákveðið að einbeita sér að því sem hann gerir best,“ svaraði Sindri í Fantasýn þá léttur í bragði en engin verðlaun fást fyrir að vera með besta stjörnuliðið. Lokastaðan í Fantasýn deildunum. Heilmikil verðlaun eru hins vegar á leiðinni til Þorgeirs Finnbogasonar, sem varð efstur allra á Íslandi og tryggði sér sigurinn í lokaumferðinni. Þorgeir á von á vinningi sem inniheldur flug, gistingu og miða á leik í enska boltanum. Lokaþátt tímabilsins hjá Fantasýn hlaðvarpinu má finna hér fyrir neðan.
Enski boltinn Fantasýn Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Steig á liggjandi mótherja en ekkert dæmt Fótbolti Argentína nú þegar undir rannsókn Fótbolti Giskaði á réttan sigurvegara HM í fimmta skiptið í röð Fótbolti Drifu sig strax í að rífa upp grasið af HM-vellinum Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira