Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Lovísa Arnardóttir skrifar 27. maí 2026 09:12 Sagnaland, ný hljóðbókaveita á markaði, kvartaði til Samkeppniseftirlitsins. Vísir/Anton Brink Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á markaði, Sagnaland. Ekki hefur verið tekin bráðabirgðaákvörðun um málið en Samkeppniseftirlitið segir ekki útilokað að það verði gert síðar.
Í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu kemur fram að það hafi haft til skoðunar erindi frá hljóðbókaveitunni Sagnalandi þar sem kvartað var undan meintri misnotkun Storytel á markaðsráðandi stöðu. Kynntu lægra tilboð en hefðbundin verðskrá sýndi Sagnaland taldi þannig Storytel hafa brugðist við opnun þeirra með því að kynna mun lægra tilboð en samkvæmt hefðbundinni verðskrá fyrirtækisins. Sagnaland vísaði í sínu erindi til þess að Storytel væri markaðsráðandi á markaðnum og að aðgerðir fyrirtækisins væru til þess fallnar að skaða lítinn keppinaut sem væri að hefja starfsemi á íslenskum hljóðbókamarkaði. „Þó að samkeppni sé alla jafna af hinu góða fyrir neytendur þá vakna spurningar um hvort svo ör og sértæk verðviðbrögð af hálfu markaðsráðandi aðila með yfir 50.000 notendur (sá eini á Íslandi) geti talist til ótilhlýðilegra viðskiptahátta, sérstaklega ef markmiðið er að hindra innkomu nýrra aðila á hljóðbókamarkaðinn,“ sagði í erindi þeirra. Í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins segir að þau hafi í kjölfarið sent Storytel bréf þar sem þeim var tilkynnt um skoðunina og óskað eftir upplýsingum frá þeim og sjónarmiðum. Samkeppniseftirlitið benti á í sínu bréfi að afleiðingar undirverðlagningar markaðsráðandi fyrirtækis geti verið að veikari keppinautar sjái ekki ástæðu til að taka þátt í samkeppni og geti neyðst til að hætta starfsemi. Sérstaklega alvarlegt þyki þegar fyrirtæki með áberandi sterka stöðu á markaði beitir undirverðlagningu í tengslum við innkomu nýs samkeppnisaðila sem er að reyna að ná fótfestu á markaði. Í svari Storytel kom svo fram að fyrirtækið teldi sig ekki vera markaðsráðandi og hafnaði því að umrætt tilboð, sem hafi beinst að takmörkuðum hópi fyrrum áskrifenda, hafi falið í sér skaðlega undirverðlagningu. Ekki forsendur fyrir bráðabirgðaákvörðun Að lokum segir að Samkeppniseftirlitið telji ekki, á þessu stigi, forsendur til að taka bráðabirgðaákvörðun vegna málsins en við mat á því var, meðal annars, litið til þess að umrætt tilboð hafi ekki sérstaklega beinst að innkomu Sagnalands á markað. Samkeppniseftirlitið brýnir þó fyrir Storytel að huga að stöðu sinni á markaðnum og gæta sérstakrar varúðar í markaðssetningu og tilboðum til viðskiptavina á samkeppnislega viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir að ná fótfestu á markaði. Að lokum segir að Samkeppniseftirlitið kunni að taka málið til frekari rannsóknar á síðari stigum. Samkeppniseftirlitið hefur auk þess háttsemi Storytel til rannsóknar í öðru máli, þar sem meðal annars er til skoðunar hvernig skilgreina beri þá markaði sem Storytel starfar á. Ákveðið var að rannsaka Storytel eftir að kvörtun barst frá Rithöfundasambandi Íslands um misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Í kvörtuninni segir að RSÍ telji að hljóðbækur sem gefnar eru út af Storyside auk annarra útgáfna tengdum fyrirtækinu sé forgangsraðað yfir aðrar bækur. Til að mynda séu hljóðbækur Storyside í sérstökum forgangi í framsetningu og efnisvali í streymisveitunni og fái þar af leiðandi meiri hlustun.
Bókmenntir Storytel Samkeppnismál Tengdar fréttir Vann að tveimur verðlaunabókum en fékk ekki boð á hátíðina Upptökustjórinn Egill Viðarsson vann að átta bókum sem voru tilnefndar til Íslensku hljóðbókaverðlauna Storytel en tvær þeirra unnu til verðlauna. Hann fékk samt ekki boð á verðlaunahátíðina vegna meints plássleysis og gagnrýnir þá framkomu. Leiðinlegt sé að fá ekki að vera með á stærstu uppskeruhátíð kollega sinna og veltir fyrir sér hvort stofna þurfi ný hljóðbókaverðlaun. 25. mars 2026 16:39 Mest lesið Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Viðskipti innlent Fleiri færðu lögheimili í ár Viðskipti innlent Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Viðskipti erlent Fleiri fréttir Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Sjá meira
Vann að tveimur verðlaunabókum en fékk ekki boð á hátíðina Upptökustjórinn Egill Viðarsson vann að átta bókum sem voru tilnefndar til Íslensku hljóðbókaverðlauna Storytel en tvær þeirra unnu til verðlauna. Hann fékk samt ekki boð á verðlaunahátíðina vegna meints plássleysis og gagnrýnir þá framkomu. Leiðinlegt sé að fá ekki að vera með á stærstu uppskeruhátíð kollega sinna og veltir fyrir sér hvort stofna þurfi ný hljóðbókaverðlaun. 25. mars 2026 16:39