Benítez rekinn eftir 40 leiki Valur Páll Eiríksson skrifar 23. maí 2026 13:22 Rafael Benítez er farinn frá Panathinaikos. Simon Stacpoole/Offside/Getty Images Rafael Benítez hefur verið sagt upp störfum sem þjálfari Sverris Inga Ingasonar og félaga í Panathinaikos í Grikklandi. Hann entist aðeins rúmt hálft ár í starfi.
Benítez tók við Panathinaikos í lok október og tókst að stýra liðinu í fjórða sæti grísku deildarinnar og þar með í Sambandsdeild Evrópu á næstu leiktíð. Hann tók við liðinu í sjöunda sæti en liðið vann aðeins 19 af 40 leikjum undir hans stjórn og tapaði þar af 10. Það þykir ekki viðunandi árangur hjá gríska stórliðinu. Sverrir Ingi fær því nýjan þjálfara á næstunni en Jacob Neestrup, þjálfari FCK í Danmörku, hefur verið orðaður við starfið. Benítez er á meðal stærri nafna í þjálfaraheiminum en það hefur heldur molnað undan árangri Spánverjans undanfarin ár. Eftir að hafa gert Valencia að spænskum meisturum í tvígang tók hann við Liverpool hvar hann vann Meistaradeild Evrópu og FA-bikarinn á fyrstu tveimur leiktíðum sínum en svo ekki söguna meir. Hann stýrði Inter Milan, Chelsea, Napoli og Real Madrid eftir veru sína í Bítlaborginni og hefur þá einnig stýrt Newcastle og Everton á Englandi. Illa gekk hjá Benítez með Celta Vigo milli 2023 og 2024 og þá entist hann nú aðeins sjö mánuði hjá Panathinaikos.
Gríski boltinn Spænski boltinn Mest lesið Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Dagskráin: Níu klukkutíma NFL-veisla og Liverpool og Man. United í beinni Sport Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Fleiri fréttir Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Sjá meira