Stjúpur og fjólur það heitasta Stefán Árni Pálsson skrifar 25. maí 2026 10:00 Tími blómanna framundan. Það er búið að vera óvenju kalt bæði í vor og í byrjun sumars þar til núna. En hvernig getum við flýtt sumrinu með því að setja strax út sterkar og fallegar plöntur og blóm? Nokkrar tegundir eru þekktar fyrir að þola vel íslenskt vor og kalda sumarbyrjun. Við fórum austur fyrir fjall til Hveragerðis og Selfoss og ræddum við plöntusérfræðinga eins og Lindu Maríu Traustadóttur í Flóru garðyrkjustöð í Hveragerði og svo rifjuðum við upp hvernig Auður Ingibjörg Ottesen á Selfossi nennir aldrei að bíða eftir sumarblómunum og er komin með litríkan garð snemma á sumrin.
Og blómahönnuðurinn Bryndís Eir Þorsteinsdóttir er alltaf komin með blómlegan garð hjá sér í Hveragerði langt á undan öllum öðrum. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag í blómaleiðangur í síðustu og kynnti sér hvernig hægt er að flýta sumrinu. „Helst ber að nefna stjúpur og fjólur. Þær eru litlu bakkaplönturnar sem þola nánast hvað sem er. Við höfum alveg lent í því á Íslandi að vera búin að setja þær út og svo snjóar yfir þær. Þær bara lifa samt sem áður, koma bara undan snjó. Þannig að þær eru öruggasti valkosturinn til að hafa úti allan sólarhringinn. Svo er það krosshnappurinn sem er alltaf mjög vinsæll. Hann er stór og mikil blaðplanta, svona hengiplanta, ræktaður vegna blaðanna til að fá svona mikinn blaðmassa,“ segir Linda María og heldur áfram. „Hún er yfirleitt notuð sem hengiplanta. Það er líka hægt að setja hana í beð og þá munu allir angarnir sem liggja ræta sig, þannig að hún er í rauninni líka mjög góð þekjuplanta. Og þetta er svona planta sem er rosalega gróskumikil, þannig að hún getur farið að fara út með hana fljótlega og gefur strax svona mikinn grænan massa, sem er alveg mjög vinsælt á þessum tíma.“ Stjúpurnar lifa langt fram eftir hausti. „Þær gera það. Þær eru lágvaxnar, taka þar af leiðandi á sig minni vind og eru lágt við jörðu. Og þær halda sig bara í blóma langt fram eftir hausti og jafnvel þegar það byrjar aðeins að kólna á nóttunni og frysta, þá eru þær svona sem þola það mest, geta haldið samt áfram í blóma.“ Hér að neðan má sjá yfirferð Völu um blómalífið á landinu.
Vala Matt Ísland í dag Blóm Mest lesið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Sjá meira