„Hafa aldrei séð afa sinn í vafasömu ástandi en gera það í kvöld“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. maí 2026 21:30 Martin O'Neill kom gamla félaginu sínu, Celtic, tvisvar til bjargar á tímabilinu. Liðið gæti unnið tvöfalt undir stjórn Norður-Írans. getty/Andrew Milligan Þrátt fyrir að vera orðinn 74 ára ætlar Martin O'Neill að fagna skoska meistaratitlinum sem Celtic vann í dag með stæl, jafnvel þótt barnabörnin sjái afa sinn í misjöfnu ásigkomulagi í fyrsta sinn.
Celtic varð skoskur meistari fimmta árið í röð eftir sigur á Hearts, 3-1, í hreinum úrslitaleik um titilinn á Celtic Park í dag. Hearts dugði jafntefli og náði forystunni en Celtic svaraði með þremur mörkum og tryggði sér titilinn. Á ýmsu gekk hjá Celtic í vetur. O'Neill tók við liðinu til bráðabirgða í lok október í fyrra og stýrði liðinu fram í byrjun desember þegar Wilfried Nancy var ráðinn knattspyrnustjóri þess. Illa gekk undir hans stjórn og hann var látinn taka pokann sinn eftir aðeins 33 daga í starfi. Þá var hóað aftur í O'Neill. Hann kláraði tímabilið og leiddi Celtic til síns 56. meistaratitils í sögunni. O'Neill stýrði Celtic áður á árunum 2000-05. Á þeim tíma vann liðið skoska meistaratitilinn í þrígang, síðast tímabilið 2003-04 „Ég var miklu yngri þá svo vínið hefur meiri áhrif á mig núna,“ sagði O'Neill glettinn þegar hann var spurður út í hvernig hann ætlaði að fagna meistaratitilinum núna, 22 árum eftir að hann gerði Celtic síðast að skoskum meisturum. „En ég geri það. Ég á tvö barnabörn og hlakka til þess. Ég sá þau í smá stund áðan. Þau hafa aldrei séð afa sinn í vafasömu ástandi en gera það í kvöld. Og ég verð fínn á morgun.“ Eftir að Callum Osmand skoraði þriðja mark Celtic í uppbótartíma í leiknum í dag ruddust stuðningsmenn liðsins inn á völlinn. Hearts hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem félagið fordæmir framkomu stuðningsmanna Celtic og segir að þeir hafi skaðað orðspor skosks fótbolta. Þegar O'Neill var spurður út í framtíð sína eftir leikinn á Celtic Park í dag sagðist hann ekki vita hvort hann héldi áfram að stýra skosku meisturunum. O'Neill sagði að þau mál yrðu eflaust rædd eftir bikarúrslitaleikinn um næstu helgi þar sem Celtic mætir Dunfermline á Hampden Park í Glasgow.
Skoski boltinn Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjá meira