Celtic tók titilinn í lokaumferðinni Ágúst Orri Arnarson skrifar 16. maí 2026 13:34 Daizen Maeda skoraði mikilvægasta mark leiksins. Ian MacNicol/Getty Images Celtic varð Skotlandsmeistari fimmta árið í röð með 3-1 sigri gegn Hearts, liði Tómas Bent Magnússonar.
Hearts hefur verið á toppnum allt tímabilið og hefði orðið fyrsta liðið fyrir utan Celtic og Rangers til að vinna skosku deildina síðan árið 1985. Eftir hádramatíska umferð um síðustu helgi réðust úrslitin í lokaumferð deildarinnar í dag. Hearts dugði jafntefli en Celtic þurfti sigur á heimavelli. Lawrence Shankland tók forystuna fyrir Hearts á 43. mínútu með skallamarki eftir hornspyrnu en annars voru gestirnir mest allan tímann í vörn. Allt ætlaði um koll að keyra hjá stuðningsmönnum Hearts á þeim tímapunkti. Þeir voru þó fáir, aðeins 752 af rúmlega 60 þúsund áhorfendum í heildina. Celtic var samt sterkara liðið og jafnaði leikinn skömmu síðar. Boltinn fór þá í hönd varnarmanns Hearts, vítaspyrna var dæmd og Arne Engels jafnaði leikinn í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Allt ætlaði um koll að keyra þegar Shankland skoraði fyrir Hearts en forystan entist ekki lengi. Ian MacNicol/Getty Images Celtic stóð síðan í stórsókn nánast allan seinni hálfleikinn og eftir langa bið tókst liðinu loks að skora á 87. mínútu. Daizen Maeda var maðurinn sem tryggði Celtic titilinn. Hann var upphaflega flaggaður rangstæður í markinu og stuðningsmenn Hearts fögnuðu grimmt, en eftir myndbandsskoðun kom í ljós að um misskilning væri að ræða og markið var dæmt gilt. Stuðningsmenn Celtic biðu í ofvæni eftir niðurstöðu myndbandsdómara. Ian MacNicol/Getty Images Þegar Hearts henti öllu fram undir lokin tókst Celtic að skora sitt þriðja mark. Callum Osmand var þar að verki og negldi síðasta naglann í kistu Hearts. Tómas Bent hefur ekki tekið þátt í lokatörn tímabilsins með Hearts vegna meiðsla og sat uppi í stúku þegar Celtic tryggði titilinn. Fram að því hafði hann verið lykilmaður í liðinu og skorað nokkur mörk á mikilvægum tímapunktum á tímabilinu.
Skoski boltinn Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjá meira