Bikarævintýri Reyknesinga og Garðbæinga Sindri Sverrisson skrifar 15. maí 2026 19:58 Grindavík/Njarðvík heldur áfram að gera góða hluti og komst í kvöld í 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins. vísir/Guðmundur Sameinað lið Grindavíkur og Njarðvíkur heldur áfram að gera góða hluti og sló í kvöld Valskonur út úr Mjólkurbikarnum, í 16-liða úrslitum, með 3-2 sigri á Hlíðarenda. Fjögur lið eru komin áfram.
Á fimm dögum hafa leikmenn Grindavíkur/Njarðvíkur því fagnað góðum sigri gegn Þrótti í Laugardal í Bestu deildinni og einnig útisigri gegn Val í bikarnum. Sophia Romine og Ása Björg Einarsdóttir komu Grindavík/Njarðvík í 2-0 en Málfríður Anna Eiríksdóttir minnkaði muninn á 76. mínútu. Ása Björg bætti svo við öðru marki sínu á 86. mínútu áður en Ágústa María Valtýsdóttir minnkaði muninn aftur úr víti í lokin en þar við sat. Snædís María með tvennu á Akureyri Snædís María Jörundsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Stjörnuna sem sló Þór/KA út með 4-1 sigri á Akureyri. Staðan var 1-1 í hálfleik eftir að Birgitta Rún Finnbogadóttir jafnaði metin fyrir heimakonur rétt fyrir hléið en Snædís skoraði sitt annað mark á 66. mínútu og Telma Steindórsdóttir bætti við marki aðeins þremur mínútum síðar. Andrea Mist Pálsdóttir, sem skoraði tvennu í 2-2 jafntefli við Þór/KA á Akureyri fyrir níu dögum, innsiglaði svo sigurinn í lokin. Risasigur FH-inga FH-konur flugu áfram með 7-0 risasigri gegn Selfossi á útivelli. Nia Raisa Christopher skoraði þrennu á korteri í seinni hálfleik, eftir að FH hafði komist í 4-0 og Ingibjörg Magnúsdóttir skorað tvennu á fyrsta korteri leiksins. Helena Errington og Berglind Freyja Hlynsdóttir skoruðu einnig. Öruggt hjá Fram gegn ÍA Framkonur slógu út Lengjudeildarlið ÍA með 3-0 heimasigri. Alda Ólafsdóttir skoraði um miðjan fyrri hálfleik og þær Sara Svanhildur Jóhannsdóttir og Una Rós Unnarsdóttir bættu við mörkum á fyrsta korteri seinni hálfleiksins. Leik Keflavíkur og Víkings er ekki lokið en þar var staðan markalaus eftir venjulegan leiktíma. Upplýsingar um markaskorara eru að hluta af Fótbolta.net.
Mjólkurbikar kvenna Mest lesið „Eyðileggur íþróttina“ Sport „Mér líður eins og ofurkonu núna“ Sport Zidane hringdi í gamla liðsfélagann sem lék með honum í Laugardalnum Fótbolti „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Körfubolti Boxari látinn 33 ára: Varð fyrir alvarlegum heilaskaða í bardaga Sport Sonur Klinsmann átti á hættu að geta aldrei gengið aftur Fótbolti Gylfi: „Erfitt að lenda undir eftir tíu mínútur“ Fótbolti Fyrstur til að vinna fjörutíu titla með einu félagi Fótbolti Ekki rétt að hann hafi „risið upp frá dauðum“ Fótbolti Markaveisla í toppslagnum og æsispennandi toppbarátta Íslenski boltinn Fleiri fréttir Markaveisla í toppslagnum og æsispennandi toppbarátta Þrótturum mistókst að komast á toppinn Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 3-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Uppgjörið: Víkingur-FC Thun 3-2 | Evrópudeildardraumurinn úti Uppgjörið: Nordsjælland – Valur 5-0 | Ekki léttir í lund í Kaupmannahöfn Elvis kominn í Bítlabæinn Stelpurnar tóku yfir Akureyri Hnéhlífarnar nauðsynlegar er teymi Víkings hleypur fyrir Ingvar Fögnuðu sigri og tilkynntu Úlfu Dís eftir leik Öll lið lenda í þessu Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 1-0 | Katelyn Duong hetja Blika Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Uppgjörið: Þróttur-Valur 3-2 | Fyrsti sigur Þróttar í 75 daga Uppgjörið: Fram-FH 4-6 | Ótrúleg markasúpa á Lambhagavelli Fékk atvinnutilboð erlendis og hættir með kvennalið Keflavíkur Þórsarar fá annan Víking norður Þróttarar fá Björgeyju Njálu aftur heim Keflvíkingar bæta við sig Króata Staðfestir brottför Gunnars: „Einn besti varnarmaður frá upphafi“ Ásdís Karen til FH Um ótrúlegt met KR: „Langskemmtilegustu leikirnir“ Martröðin í Kasakstan þjappaði Blikum saman Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn „Búið að gerast á frekar fyndinn hátt hjá mér síðustu ár“ Stúkumönnum fannst ósanngjarnt að reka Conteh út af Sjáðu KR bæta markametið gegn Fram Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Sjá meira