Viðskipti innlent

Lággjaldafélag Nova byggt á gervi­greind komið í loftið

Árni Sæberg skrifar
Sigríður Rakel Ólafsdóttir, markaðsstjóri Kosmos, Sverrir Hreiðarsson, framkvæmdastjóri Kosmos, og Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova Klúbbsins.
Sigríður Rakel Ólafsdóttir, markaðsstjóri Kosmos, Sverrir Hreiðarsson, framkvæmdastjóri Kosmos, og Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova Klúbbsins. Nova klúbburinn

Nýtt farsímafélag í eigu Nova Klúbbsins, Kosmos, hefur formlega starfsemi í dag og er sagt marka tímamót á íslenskum fjarskiptamarkaði.

Í tilkynningu til Kauphallar segir að með lítilli yfirbyggingu, hagnýtingu gervigreindar og alsjálfvirkri þjónustu bjóðist viðskiptavinum nú hagstæðasta farsíma- og netþjónusta landsins, besta verðið á netinu erlendis og verðtrygging í tvö ár. Kosmos sé jafnframt fyrsta farsímafélagið á Íslandi sem byggir þjónustu sína eingöngu á 5G tækni og rafrænum símkortum (eSIM).

„Við sameinum lágan rekstrarkostnað og nýjustu tækni til að bjóða einfaldari og hagkvæmari þjónustu. Með því að byggja lausnir okkar á forsendum gervigreindar frá fyrsta degi getum við bæði lækkað verð og bætt þjónustu. Með eingöngu stafræna þjónustu, þráðlausar 5G tengingar og rafræn símkort, höfum við tekið út allan óþarfa án þess að skerða gæði þjónustunnar,“ er haft eftir Sverri Hreiðarssyni, framkvæmdastjóra Kosmos. 

  • Kosmos leggi áherslu á eftirfarandi í fjarskiptaþjónustu:
  • Lægsta verðið í net- og farsímaþjónustu á Íslandi
  • Besta verðið á netinu í útlöndum, skýra og gagnsæja gjaldskrá
  • Verðtryggingu í 2 ár – engin falin gjöld eða skyndilegar hækkanir
  • Rafrænt símkort (eSIM) eingöngu – engin plastkort, enga bið
  • Sjálfsafgreiðslu og gervigreind – framúrskarandi þjónustustig
  • Þráðlausa 5G tenging – öflugt heimanet og gott samband um allt land

„Í dag stígur Nova enn eitt djarft skref með stofnun Kosmos, nýs dótturfélags Nova Klúbbsins. Með tilkomu Kosmos erum við að mæta eftirspurn eftir einfaldari og ódýrari fjarskiptaþjónustu, á sama tíma og við aukum nýtingu innviða. Kosmos er byggt frá grunni sem lággjaldafélag sem nýtir eSIM, 5G-net og gervigreind til að bjóða einfalda og hagkvæma þjónustu,“ er haft eftir Sylvíu Kristínu Ólafsdóttur, forstjóra Nova Klúbbsins. 

„Félagið er rekið af litlum og öflugum hópi sem sýnir svart á hvítu hvernig gervigreind getur umbylt rekstrarlíkani í fjarskiptum. Með Kosmos erum við meðvitað að ögra okkur sjálfum og skapa beina samkeppni við Nova á einstaklingsmarkaði. Við trúum því einfaldlega að besta leiðin til að verja sterka stöðu sé að vera fyrst til að endurskilgreina hana. Á sama tíma hefur Nova búið til einfalda heildsöluvöru sem að aðrir aðilar geta nýtt sér. Þetta er leið til að nýta enn betur fjarskiptainnviði Nova.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×