GameStop vill kaupa eBay Samúel Karl Ólason skrifar 5. maí 2026 08:54 GameStop rekur verslanir víða um Bandaríkin. Þar voru á árum áður seldir tölvuleikir en nú selur GameStop mikið af safngripum og spjöldum, sem er svipaður markaður og stjórendur eBay hafa lagt áherslu á. Getty/Brandon Bell Ryan Cohen, forstjóri GameStop, hefur gert 56 milljarða dala boð í fyrirtækið eBay, sem hann segist vilja byggja upp og gera samkeppnishæft við Amazon, risann á sviði netsölu. Bæði fyrirtækin mega muna sinn fífil fegurri en reksturinn hefur ekki gengið vel á undanförnum árum.
Í frétt Wall Street Journal segir að GameStop eigi þegar um fimm prósent í eBay og hefur nú boðist til að kaupa allt fyrirtækið á 125 dali á hlut, sem er töluvert hærra en fyrirtækið hefur verið metið á að undanförnu. Eigendur hlutabréfa í eBay myndu fá helminginn í peningum og hinn helminginn í hlutabréfum í GameStop. EBay er metið á um 46 milljarða dala en GameStop á einungis tólf. Stjórn eBay segir kauptilboðið til skoðunar, með tilliti til hagsmuna hluthafa til framtíðar. Hafni stjórnin tilboðinu segist Cohen tilbúinn til að fara beint til hluthafa, enda sjái hann mikil tækifæri með sameinuðu fyrirtæki. „EBay ætti að vera, og verður, mun meira virði,“ sagði Cohen í viðtali við WSJ. „Ég er að hugsa um að gera eBay hundruð milljarða virði.“ Greinendur sem blaðamenn WSJ ræddu við telja hæpið að Cohen muni takast að kaupa eBay. Þar sé búið að grípa til ýmissa hagræðingaraðgerða og þá hefur sérstök áhersla verið lögð á sölu safngripa og öðrum sérhæfðum mörkuðum. Þær breytingar séu byrjaðar að skila árangri og stjórn eBay sé ekki líkleg til að vilja hrista upp í hlutunum á nýjan leik. Cohen eignaðist stóran hlut í GameStop árið 2020 en þá var fyrirtækið í miklum kröggum. GameStop var stórt fyrirtæki á markaði tölvuleikja á árum áður en spilarar kaupa mun minna af tölvuleikjum á diskum en þeir gerðu áður og hefur það komið niður á rekstri GameStop. Árið 2021 var GameStop mikið milli tannanna á fólki þegar hlutabréf fyrirtækisins fóru í mikla rússíbanareið. Þá höfðu forsvarsmenn fjárfestingasjóðanna Citron Research og Melvin Capital tekið stöðu gegn GameStop með skortsölu og veðjuðu á að virði hlutabréfa fyrirtækisins myndi lækka. Fjárfestar á Reddit fylktu sér þó að baki GameStop og fjárfestu í hlutabréfum fyrirtækisins í massavís. Fjölmargir áhugafjárfestar töpuðu á endanum fúlgum fjár. Chohen segist sjá mikil tækifæri í því að sameina GameStop og eBay, eins og áður hefur komið fram, en hann gæti einnig haft mikla persónulega hagsmuni af sameiningunni. Þegar hann var gerður að forstjóra GameStop var sett ákvæði í samning hans um að ef honum tækist að gera félagið hundrað milljarða dala virði, auk þess að ná öðrum áföngum, myndi hann fá allt að 35 milljarða dala í hlutabréf.
Bandaríkin Mest lesið Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Himneskt ei meir Viðskipti innlent Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira