Sport

Hvað gera stuðnings­menn Vals?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Stuðningsmenn Vals þurfa að taka erfiða ákvörðun í kvöld.
Stuðningsmenn Vals þurfa að taka erfiða ákvörðun í kvöld. vísir/guðmundur

Valur hefur lengi verið handboltaklúbbur frekar en körfuboltaklúbbur en það hefur verið að breytast á síðustu árum.

Fleiri hafa verið að sækja leiki körfuboltaliðsins og það kemur svolítið í ljós í kvöld hvort Valur er í dag. Handboltalið karla getur orðið Íslandsmeistari á sama tíma og körfuboltalið karla berst fyrir lífi sínu. Á hvorn leikinn mætir hinn almenni Valsari?

Tindastóll tryggði sér oddaleik í Bónus deild karla í gær með sigri í Garðabænum. Fari svo að Valur skelli Grindavík í kvöld verður einnig oddaleikur þar. Báðir leikir færu þá fram á miðvikudag.

Það gaf á bátinn hjá fótboltaliði Vals um helgina er KR pakkaði þeim saman öðru sinni á skömmum tíma. Markatalan í þeim leikjum 8-1 fyrir KR. Einhver hasar var eftir leik en það virðast ekki ætla að vera frekari eftirmálar.

Stjarnan er í veseni í Bestu karla eftir þriðja tapleikinn í röð í gær.

Man. Utd er komið í Meistaradeildina á ný og það verður rosalegt kapphlaup á toppnum fram í lokaumferð. Það er af nægu að taka í Besta sætinu í dag.

Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Það kemur út alla virka daga og er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×