Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Árni Sæberg skrifar 4. maí 2026 13:51 Una Jónsdóttir er aðalhagfræðingur Landsbankans. Vísir/Vilhelm Greiningardeild Landsbankans telur töluverðar líkur á því að almyrkvi á sólu þann 12. ágúst muni hafa áhrif á verðbólgumælingar í ágúst. Forsenduákvæði kjarasamninga miðar við verðbólgumælingu ágústmánaðar og því gæti sólmyrkvinn virkjað ákvæðið.
Þetta kemur fram í nýjum pistli á vef Landsbankans. Þar segir að sólmyrkvar séu áhugaverðir og margir sem sækist eftir því að berja þá augum. Þann 12. ágúst næstkomandi verði almyrkvi á sólu sem muni sjást vel á vesturhluta landsins, þar á meðal á höfuðborgarsvæðinu. Reikna megi með straumi ferðamanna „Það má því bæði gera ráð fyrir straumi erlendra ferðamanna til landsins, en einnig að Íslendingar geri sér ferð vestur til að fá betra útsýni. Færri munu komast að en vilja og því töluverður verðþrýstingur á þá þjónustu sem ferðlangar kaupa. Verð á flugfargjöldum til landsins, gistingu og bílaleigu er töluvert hærra dagana í kringum sólmyrkvann, en mikið er uppbókað nú þegar. Auk þess megi búast við aukinni ásókn í veitingaþjónustu og ásókn í tjaldstæði á þeim svæðum þar sem sólmyrkvinn sést. Benda á „Taylor Swift áhrifin“ Sólmyrkvinn í ágúst muni sjást á vesturhluta landsins og gera megi ráð fyrir að mest álag verði á Vestfjörðum, Snæfellsnesi og yst á Suðurnesjum þar sem hann muni vara lengst. Sólmyrkvinn muni líka sjást vel frá höfuðborgarsvæðinu, en þar muni hann vara í kringum eina mínútu. „Það er ekki óþekkt að stórir viðburðir hafi áhrif á verðmælingar. Taylor Swift áhrifin eru vel þekkt, en á þeim stöðum þar sem hún heldur tónleika hefur það alla jafna í för með sér töluverða aukna staðbundna veltu í ferðaþjónustu. Hótel fyllast og veitingastaðir finna fyrir aukinni eftirspurn og því kemur ekki á óvart að verð á þeirri þjónustu hækki, jafnvel svo mikið að það hafi áhrif á verðbólgumælingar. Taylor Swift hélt þrenna tónleika í Stokkhólmi í maí 2024 og um 150 þúsund aðdáendur flykktust til Stokkhólms og verð á hótelgistingu rauk upp sem átti stóran þátt í því að verðbólga þann mánuð mældist töluvert yfir væntingum markaðsaðila.“ Þannig séu töluverðar líkur á að sólmyrkvinn muni hafa áhrif á verðbólgumælingar í ágúst. Áhrifin verði örugglega nokkuð greinileg þar sem sólmyrkvinn muni eiga sér stað í miðri verðsöfnunarviku Hagstofunnar. Gera megi ráð fyrir að verð á flugfargjöldum, gistingu, veitingaþjónustu, bílaleigu og annarri þess háttar þjónustu verði hærri en ella vegna þess, en ferðaþjónusta sé um 5,2 prósent af vísitölu neysluverðs. „Slíkt verðbólguskot er þó ekki vegna undirliggjandi efnahagsþátta heldur einfaldlega verðhækkun vegna stórviðburðar og verð lækkar að öllum líkindum aftur strax á eftir.“ Á versta mögulega tíma Loks segir að færa megi ýmis rök fyrir því að sólmyrkvinn sjáist hér á versta tíma, út frá efnahaglegu sjónarmiði. Í fyrsta lagi sé ágúst alla jafna stærsti ferðaþjónustumánuður ársins. Efnahagslegur ábati vegna fjölgunar ferðamanna verði því minni en ef sólmyrkvinn væri til dæmis einhvern tímann yfir vetrarmánuðina, þegar minna er að gera í ferðaþjónustunni. „Þá er forsenduákvæði í kjarasamningum sem virkjast ef verðbólga mælist yfir 4,7 prósent í ágúst. Eins og staðan er gæti brugðið til beggja vona með ágústmælingu vísitölu neysluverðs. Þó áhrif sólmyrkvans á verðbólgumælingar yrðu ekki endilega mjög mikil, gæti það samt verið nóg til að forsenduákvæðið virkjist. Ágúst er því að mörgu leyti versti mánuðurinn fyrir sólmyrkva hér á Íslandi.“
Landsbankinn Efnahagsmál Almyrkvi 12. ágúst 2026 Verðlag Ferðaþjónusta Fjármálafyrirtæki Kjaramál Mest lesið Áslaug Arna í gervigreindina hjá CCP Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Neytendur Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Fleiri fréttir Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá CCP Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Sjá meira