Viðskipti innlent

Sig­rún ráðin aðal­bókari

Árni Sæberg skrifar
Sigrún Hallgrímsdóttir er nýr aðalbókari Póstsins.
Sigrún Hallgrímsdóttir er nýr aðalbókari Póstsins. Pósturinn

Sigrún Hallgrímsdóttir hefur verið ráðin aðalbókari Póstsins. Sigrún hlaut löggildingu til endurskoðunar árið 1998 og er með meistaragráðu frá Háskóla Íslands í fjármálum fyrirtækja.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að áður hafi Sigrún starfað hjá Mílu í fjórtán ár og þar af tíu ár sem fjármálastjóri. Auk þess hafi hún starfað í viðskiptagreind hjá Kaupþingi, við verðútreikninga og kostnaðargreiningu hjá heildsölu Símans og við endurskoðun hjá Ríkisendurkoðun. Sigrún sé í stjórn Rarik.

„Við erum afar ánægð að hafa fengið Sigrúnu til liðs við Póstinn. Hún býr yfir víðtækri reynslu í fjármálastjórnun, reikningshaldi og greiningu og hefur mikla þekkingu á þeim kerfum sem við notum. Ráðning Sigrúnar styrkir fjármálasviðið enn frekar og mun hún gegn lykilhlutverki í áframhaldandi þróun og faglegum rekstri reikningshalds Póstsins,“ er haft eftir Gunnari Þór Tómassyni, framkvæmdastjóra fjármálasviðs Póstsins.

Þá er haft eftir Sigrúnu að starfið leggist vel í hana.

„Hér ríkir greinilega góður starfsandi og það hefur verið tekið einstaklega vel á móti mér. Ég hlakka til að taka þátt í þeirri spennandi vegferð sem Pósturinn er á í breyttu rekstrarumhverfi.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×