Sport

Besta sætið: Skjálfti í Síkinu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls, og lærisveinar hans eru undir alvöru pressu í kvöld.
Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls, og lærisveinar hans eru undir alvöru pressu í kvöld. vísir/ernir

Tindastóll er með bakið upp við vegginn í kvöld er Íslandsmeistarar Stjörnunnar mæta í heimsókn. Það er hitað vel upp fyrir leikinn í Besta sætinu í dag.

Stjarnan leiðir einvígið 2-0 og getur því sópað Stólunum í frí í Síkinu í kvöld. Staða sem enginn sá fyrir eftir að Orri Gunnarsson og Ægir Þór Steinarsson duttu úr Stjörnuliðinu vegna meiðsla.

Stemningin á eftir að verða rugluð í Síkinu í kvöld er Stjarnan mætir líklega öllum Skagafirði. Það sauð á kötlum eftir síðasta leik en vonandi fer allt friðsamlega fram í kvöld.

Leikur PSG og Bayern í Meistaradeildinni í gær mun seint renna mönnum úr minni. Flugeldasýning og níu marka leikur. Bæði lið lofa sama fótboltanum eftir viku.

Hitt undanúrslitaeinvígið er svo á milli Atletico og Arsenal en fyrri leikur þeirra er í kvöld. Það á enginn von á sömu flugeldasýningu en þessi leikur í kvöld verður afar áhugaverð skák.

Svo hefst önnur umferð Bestu deildar kvenna í kvöld með tveimur leikjum og við hitum upp fyrir þá.

Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Það kemur út alla virka daga og er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×