Varað við ofsaveðri í Madríd meðan stórleikurinn fer fram Ágúst Orri Arnarson skrifar 29. apríl 2026 16:18 Tottenham varð fyrir barðinu á Atlético í blautu veðri í sextán liða úrslitum. Sama gæti gerst hjá Arsenal í kvöld. Bradley Collyer/PA Images via Getty Images Veðurviðvörun verður í gildi í Madríd á meðan undanúrslitaleikur Atlético Madrid og Arsenal fer fram í kvöld. Búist er við mikilli rigningu, sterkum vindhviðum og hagléli inn á milli.
Spænska veðurstofan gaf út appelsínugula veðurviðvörun fyrir höfuðborgarsvæði Spánar sem gildir þangað til klukkan tíu í kvöld. Spáð er um 30 millimetra úrkomu á klukkustund og miklum vindi með sterkum hviðum. Völlurinn á Metropolitano leikvanginum verður því rennblautur og má helst ekki mikið við því. Tottenham fékk að finna fyrir því í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar hversu hættulegt það getur verið að spila á blautum velli. Leikmenn liðsins runnu mikið til í 5-2 tapi gegn Atlético. Barcelona kvartaði líka undan vallaraðstæðum í átta liða úrslita einvíginu. Rigning hafði ekki áhrif á þann leik en Börsungar héldu því fram að grasið á vellinum hefði verið illa slegið. Mikel Arteta, þjálfari Arsenal, ætlar samt ekki að nota erfiðar aðstæður sem afsökun. „Við aðlögum okkur að aðstæðum og spilum bara eins vel og við getum. Síðustu níu mánuði, hugsið ykkur hvað við höfum heimsótt marga velli, spilað í alls konar aðstæðum og gegn alls konar andstæðingum,“ sagði Arteta á blaðamannafundi fyrir leik. Leikur Atlético og Arsenal hefst klukkan 19:00 og verður í beinni útsendingu á Sýn Sport.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Spánn Mest lesið Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti Tíu ár frá kraftaverkinu í Nice Fótbolti Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti 91 árs og mættur á sitt 18. heimsmeistaramót Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Spyr hvort VAR sé orðið happadrætti á þessu HM Fótbolti Franska lögreglan vill að Demantamótinu í París verði aflýst Sport Haraldur Franklín nálgast Opna breska Sport Þjóðhátíð þegar Grænhöfðaeyjar komst áfram Sport Fleiri fréttir Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Malmö valtaði yfir Kristianstad 91 árs og mættur á sitt 18. heimsmeistaramót Tíu ár frá kraftaverkinu í Nice Varsjáin tók sæti í 32 liða úrslitum frá Írönum Skiptar skoðanir á Messi og Ronaldo umræðunni í Eyjum Spyr hvort VAR sé orðið happadrætti á þessu HM Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Uppeldiskerfi argentínska fótboltans níðist á börnum Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Nú tók Arnar Bjarki met af Eiði Smára FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Þjálfari Portúgala byrjaði að undirbúa Kólumbíuleikinn í mars Endurkoma hjá Leikni í Breiðholtsslagnum og HK vann Fylki Dembele stal senunni frá Mbappé á móti varaliði Norðmanna Guðmundur Andri í FH eins og faðir hans forðum AC Milan kaupir Ramos fyrir metfé Búið að slá markametið á HM í fótbolta Orri og Ísak mætast í æfingaleik Haaland og Ödegaard báðir á bekknum gegn Frakklandi Gætu spilað heimaleiki sína í Meistaradeildinni á heimavelli Brentford Forsetinn gaf öllum landsmönnum frí eftir að Ekvador komst áfram Líkur Skota á að komast áfram fóru úr 42 prósentum í 5,3 prósent á einum degi BBC bað FIFA um svör vegna meints níðs Sigurðar Þjóðir biðja um að halda ekki upp á hinsegin daga meðan á leik þeirra stendur Víkingur nælir í Eið Orra sem kemur eftir tímabilið Lét menn heyra það á HM: „Þetta er smá sorglegt“ Sumarmótin: Norðurálsmótið 2026 Sjáðu mörkin úr stórsigri Víkings í Smáranum Sjá meira