Viðskipti innlent

Horfa á eftir Stein­grími úr for­stjórastólnum og spara 180 milljónir á ári

Eiður Þór Árnason skrifar
Steingrím Arnar Finnsson, fráfarandi forstjóri Fossa. 
Steingrím Arnar Finnsson, fráfarandi forstjóri Fossa.  Aðsend

Stjórn Fossa fjárfestingarbanka hefur samið við Steingrím Arnar Finnsson um starfslok en hann hefur verið forstjóri Fossa frá árinu 2023. Brynjar Þór Hreinsson tekur við eftir að hafa verið fjármálastjóri móðurfélagsins Skaga hf. frá árinu 2023.

„Ekki verður ráðið í starf fjármálastjóra samstæðu í stað Brynjars og jafnframt er gert er ráð fyrir að tilfærsla verkefna, kostnaðarhagræði og einföldun á starfsemi móðurfélags skili allt að 180 milljónum króna í árlega lækkun kostnaðar á samstæðugrunni,“ segir í tilkynningu frá Skaga til Kauphallar. Auk Fossa tilheyra Vátryggingafélag Íslands (VÍS) og Íslensk verðbréf samstæðu Skaga.

Stjórn Skaga er sögð hafa samþykkt uppfærðar áherslur í stefnu félagsins sem miði að því að auka arðsemi eftir umbreytingar síðustu ára en VÍS keypti Fossa árið 2023.

„Niðurstaðan eru aðgerðir í átt að einfaldara stjórnskipulagi og auknu hagræði af rekstri samstæðunnar. Þá verður ráðist í sértæk verkefni sem miða að því að nýta styrkleika samstæðunnar til að ná fram hagkvæmari fjármagnsskipan og auka samningsbundnar tekjur í fjármálastarfsemi.“

Með breytingunum stígur Brynjar úr hlutverki fjármálastjóra Skaga en situr áfram í framkvæmdastjórn samstæðunnar. Hann tekur við forstjórastöðunni frá og með næstu mánaðamótum.

„Steingrímur mun vera félaginu áfram til ráðgjafar í þágu lykilviðskiptasambanda, þróunar viðskipta við erlenda aðila og annarrar tekjusköpunar félagsins,“ segir í tilkynningu.

Fréttin er í vinnslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×