Sport

„Mér fannst ég kannast við liðið mitt í dag“

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Sigursteinn Arndal var að vonum ánægður með lið sitt í kvöld.
Sigursteinn Arndal var að vonum ánægður með lið sitt í kvöld. Vísir/Pawel Cieslikiewicz

FH vann sannfærandi sigur 31-25 gegn Val og jafnaði þar með einvígið um Íslandsmeistaratitilinn. Steini Arndal þjálfari FH var að vonum ánægður með frammistöðuna og stuðninginn en hann vill sjá enn fleiri mæta í næsta leik.

„Við í fyrsta lagi mættum með þá þætti sem þurfa að vera til staðar til að FH liðið nái einhverjum árangri,“ sagði Steini eftir sigur liðsins í kvöld.

Jón Þórarinn Þorsteinsson kom inn í markið af krafti í síðari hálfleik en hann hélt hreinu fyrstu átta mínútur hálfleiksins.

„Mér fannst við vinna okkur inn varnarlega vel og svo kom Jón frábær inn í seinni hálfleik. Mér fannst líka bara stóri munurinn var að það var mikið öryggi í sóknarleiknum. Færri tapaðir boltar heldur en síðast og það er bara lykillinn á móti Val.“

FH-liðið var vel stemmt og gerði nánast allt rétt í dag. Strákarnir voru vel gíraðir og fögnuðu öllu sem vel gekk.

„Það er einn af þessum þáttum sem þarf að vera til staðar. Þess vegna var ég ánægður, mér fannst ég kannast við FH-liðið mitt í dag.“

Steini telur liðið þurfa að byggja á því sem gekk vel í kvöld. Hann vill þó einnig sjá meira og fleiri stuðningsmenn styðja við bak liðsins í næsta leik.

„Þetta náttúrulega er ekki unnið. Við erum búnir að koma okkur inn í einvígið þannig að þetta er orðið alvöru einvígi. Við þurfum bara að halda áfram, finna bætingar og mæta með þá hluti sem verða að vera til staðar til að FH-liðið nái árangri.“

„Við þurfum að finna extra orku og það þurfa svo stuðningsmenn náttúrulega líka að gera. Við erum að keppa um Íslandsmeistaratitil og til þess að góður árangur megi nást  þarf allt félagið að flytja sig á bak við okkur. Ég var mjög ánægður með stuðninginn í kvöld en við þurfum meira og fleiri.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×