KR - FH 4-2 | Frá­bærir KR-ingar

Árni Jóhannsson skrifar
Eiður Guati skoraði gott mark gegn FH í kvöld.
Eiður Guati skoraði gott mark gegn FH í kvöld. Vísir / Anton Brink

KR lagði FH að velli í fjórðu umferð Bestu deildar karla á heimavelli í kvöld. Leikurinn endaði 4-2 en öll mörkin komu í fyrri hálfleik en KR réði lögum og lofum í allt kvöld.

Þjálfari FH, Jóhannes Karl Guðjónsson, vildi að sínir menn mættu grimmir til leiks gegn KR í kvöld og hann fékk ósk sína uppfyllta og nærrum því mark á fyrstu mínútu. Þá slapp Úlfur Ágúst Björnsson einn inn fyrir háa varnarlínu KR en Halldór Snær Georgsson sá við honum með glæsibrag.

FH hélt áfram að pressa hátt á heimamenn sem virkuðu taugastrekktir til að byrja með en náðu vopnum sínum og voru komnir yfir á sjöttu mínútu leiksins.

Gabríel Hrannar stóð vaktina í vörninni með prýði.Vísir / Anton Brink

Þá fékk Luke Rae boltann á vinstri kantinum. Hann náði að fara framhjá Jökli utarlega í teignum og náði að renna boltanum á Aron Sigurðsson sem þurfti aðeins að færa sig til og renna boltanum í autt markið. 

KR var þó ekki lengi í paradís því tveimur mínútum síðar var FH búið að jafna metin. Tómas Orri Róbertsson tók þá við boltanum inn í teig heimamanna eftir hornspyrnu. Hann hélt boltanum örlítið á lofti áður en hann hamraði boltanum í netið og allt jafnt eftir átta mínútur.

FH höfðu tilefni til að fagna þrátt fyrir erfiðan leik. Hér er fyrra marki Tómasar Orra fagnað.Vísir / Anton Brink

Leikurinn var leikinn af fítons krafti og bæði lið vildu pressa hitt liðið. KR er betra liðið í þessari tegund af fótbolta og náði tökunum hægt og rólega og voru farnir að pinna FH-inga nær sínum teig. 

Á 18. mínútu sprengdi Aron Sigurðsson upp vörnina hjá FH með frábærri sendingu inn fyrir vörnina. Hann fann Eið Gauta Snæbjörnsson í fætur sem renndi boltanum undir Jökul í markinu sem kom askvaðandi út á móti. 

Aron fékk í kjölfarið á markinu gult spjald vegna peysutogs sem hann hafði tekið á leikmann FH. Gestirnir fengu hagnaðinn í það skipti en töpuðu boltanum eiginlega um leið sem varð til þess að Aron komst í stöðu til að sprengja uppp vörnina hjá Hafnfirðingum. Jói Kalli var hund- og grautfúll út í störf dómarar þar.

KR óð í færum á þessum mínútum en 10 mínútum eftir annað mark KR kom það þriðja. Amin Cosic fékk boltann vinstra megin í vítateignum og kom sér í mjög þrönga stöðu en það skipti ekki máli. Hann renndi boltanum undir Jökul sem mögulega bjóst við fyrirgjöf.

Fimm mínútum síðar kom náðarhöggið. Aron Sigurðsson fékk heilmikið pláss fyrir framan vítateig FH og þakkaði pent fyrir sig með því að leggja boltann í hornið fram hjá Jökli. Þá héldu menn að öllu væri lokið fyrir FH en þeir náðu þó að klóra í bakkann undir lokin á fyrri hálfleik þegar Tómas Orri skoraði annað markið sitt í kvöld. Vörnin klikkaði þá hjá KR og Baldur Kári komst inn í vítateiginn hjá KR og hann renndi boltanum á Tómas sem sendi boltann þéttingsfast í netið.

Aron Sig. hoppar hæð sína af kæti yfir markinu sínu.Vísir / Anton Brink

KR leiddi verðskuldað í hálfleik og hefðu mögulega getað verið búnir að skora fleiri mörk.

FH gerði breytingu í hálfleik en Grétar Snær Gunnarsson, sem var kominn með gult spjald, fór af velli fyrir Kristján Snær Frostason. Hann átti að valda Amin Cosic sem var búinn að valda fullt af veseni fyrir varnarlínu FH. 

Grétar Snær að næla sér í gula spjaldið sem varð til þess að hann var tekinn út af í hálfleik.Vísir / Anton Brink

Seinni hálfleikur var öllu rólegri en sá fyrri. KR fékk sex hornspyrnur á um 90 sekúndum án þess að fá eitthvað út úr því.

Eiður Gauti olli vandræðum og beitt var hinum ýmsu brögðum til að halda honum í skefjum.Vísir / Anton Brink

Amin Cosic hélt áfram að valda usla en FH reyndu að taka hart á honum án þess þó að fá dæmt á sig brot. Kristján Snær var þar fremstur í broddi fylkingar og hlýtur hann að hafa verið kominn á fremsta hlunn með sénsana sína því Jói Kalli brá á það ráð að taka hann aftur af velli á 71. mínútu en Kristján fékk gult spjald skömmu eftir að hafa komið inn á.

KR tók aftur yfir leikinn og fór að skapa sér færi en Jökull Andrésson var stór í rammanum og sá við þeim tilraunum sem KR náði á markið. Amin Cosic var stórgóður í kvöld og hefði átt að skora eða leggja upp fullt af mörkum.

Hvorugu liði tókst að skora meira og KR fagnaði þremur stigum fyrir framan 1007 áhorfendur. KR er með fullt hús stig og +10 í markatölu. 18 mörk skoruð og átta fengin á sig en ég held að Óskar og félagar myndu ekki vilja hafa þetta nokkuð öðruvísi.

Atvik leiksins

Í sex marka leik eru mýmörg atvik sem hægt er að taka út en sóknarleikur KR er atvik leiksins. Flæðið í leik þeirra og hversu beittir þeir geta verið er unun að horfa á.

Stjörnur og skúrkar

Luke Rae var illviðráðanlegur í kvöld.Vísir / Anton Brink

Það er hægt að taka alla framlínuna í þennan dálk og allt liðið í raun og veru. Amin Cosic og Luke Rae ógnuðu í sífellu. Eiður Gauti var handfylli fyrir varnarmenn FH og Aron var að stýra liðinu sínu í góða átt. Varnarleikur KR var fínn en þeir fá samt á sig tvö mörk að meðaltali í leik en það er fórnarkostnaður sem KR verður bara að sætta sig við.

Amin Cosic var stórkostlegur í kvöld. FH réði illa við hann.Vísir / Anton Brink

Tómas Orri Róbertsson var flottur en heilt yfir réðu FH-ingar ekkert við KR-inga. Gestirnir reyndu að hleypa leiknum upp og það gerðu þeir ágætlega. Jökull Andrésson sá til þess að mörkin urðu ekki fleiri hjá KR.

Jökull Andrésson bjargaði því að KR vann ekki stór sigur í kvöld.Vísir / Anton Brink

Umgjörð og stemmning

Frábær umgjörð og stemmning. 1007 áhorfendur létu vel í sér heyra.

Dómarinn

Arnar Þór Stefánsson var í brasi í kvöld. Hagnaður veittur kannski á skrýtnum tímum og skrýtin lína oft í dómgæslunni. Spurning hvort hann sæi aumur á FH og því vildi hann ekki lyfta fleiri spjöldum.

Arnar Þór dómari stóð í ströngu í kvöld.Vísir / Anton Brink

Viðtöl:

Jóhannes: 100% pirraður og ég skil hann vel

Jói Kalli að reyna að koma skilaboðum áleiðis.Vísir / Anton Brink

Jóhannes Karl Guðjónsson var að sjálfsögðu svekktur yfir tapinu en það var fullt af jákvæðum hlutum sem hann sá við leik sinna manna í kvöld.

„Ég er ekkert rosalega ósáttur en það er aldrei gaman að tapa fótboltaleikjum. Fyrri hálfleikur sérstaklega var fjörugur og við hefðum getað komist í forystu og það hefði kannski getað breytt leikmyndinni. Við ætluðum að koma hingað og reyna að pressa á réttum tímapunktum og gera þetta erfitt fyrir KR-inga í uppspilinu en því miður þá virkaði það ekki 100% en það var ekki pressan sem var að klikka í fyrri hálfleiknum.“

 „Við áttum í vandræðum með háa bolta og það var á köflum mjög auðvelt að spila fyrir aftan okkur. KR er með Eið frammi og tvo fljóta í kringum hann. Þeir náðu yfirhöndinni. Það hefði verið skemmtilegra ef Úlfur hefði náð að skora þarna í byrjun en það hefði getað breytt myndinni.“

Jóhannes var ósáttur við dómarana á köflum en sérstaklega var hann ósáttur við dómgæsluna í aðdraganda annars marks KR.

„Það er auðvitað mismunandi hvað menn sjá og ég sá hlutina öðruvísi en Arnar í dag það er alveg á hreinu. Ég var ekki sáttur við það þegar búið er að brjóta 3-4 sinnum á Róberti Huga inn á miðjunni og Arnar gefur okkur einhvern hagnað. Það voru fjórir eða fimm KR-ingar í kringum hann, þetta var bara brot og það var enginn hagnaður fyrir okkur að leyfa leiknum að halda áfram. Það var stórt móment því þeir skoruðu strax upp úr því. Ég var mjög pirraður yfir því að það hafi ekki verið dæmt. Hann hefði getað dæmt þó að hann hafi beitt hagnaði en hann mat það svona. Við hefðum getað átt við hlutina einhvern veginn öðruvísi.“

„Að mörgu leyti var þetta góður fyrri hálfleikur og við hefðum geta skorað meira. Það er rosalega erfitt að koma hingað og vera 4-2 undir í hálfleik en við reyndum þá að stíga á þá í seinni hálfleik og reyna að koma okkur inn í leikinn. Leikmennirnir voru viljugir að hlaupa og berjast og pressa. Svo spiluðum við bara oft fínan fótbolta því KR pressa líka, fara maður á mann og við náðum stundum að leysa það. Það voru jákvæðir hlutir þarna líka sem við tökum með okkur.“

Jóhannes Karl hljómaði jákvæðari eftir þetta tap en tapið gegn Val.

„Eftir Valsleikinn vorum við drullusvekktir. Það var eitthvað sem við viljum ekki standa fyrir og ekki liðið sem við viljum vera. Þó svo við séum með fjóra erfiða útileiki í röð þá þurfum við að þora meira og þora á réttu tímapunktunum og fara að vinna stöðurnar okkar oftar. Við gerðum það á köflum gegn KR í dag. Það er erfitt að velja hvort maður ætli að liggja niðri eða pressa KR en við hefðum átt að mæta á móti Val með þessa ákefð og trú. Við hefðum alveg getað tapað honum en við hefðum þá tapað honum á okkar hátt. Það er kannski asnalegt að segja það en við viljum vera orkumeira lið og þora miklu meira. Við þorðum og sköpuðum okkur færi í dag og það er jákvætt.“

Jóhannes þurfti að bregðast við erfiðri stöðu í dag og taka Kristján Snæ Frostason af velli í seinni hálfleik eftir að Kristján kom inn á. Hvað olli því?

„Mér fannst Kristján koma inn með ákefð og grimmd en ég þurfti líka að gera breytingu í fyrri hálfleik og svissa bakvörðum. Amin Cosic var að gera okkur lífið leitt. Við setjum Kristján inn á í seinni til að stoppa hann. Hann fékk gult snemma og það hefði verið hræðilegt fyrir okkur að missa hann af velli. Við ákváðum bara að gera þessa breytingu. Það er erfitt að koma inn á og vera tekinn út af. Það hafði ekkert með frammistöðu hans að gera.“

Var Jóhannes búinn að ræða við Kristján? Skilur hann ákvörðunina?

„Ég vona það. Auðvitað verður hann drullu pirraður út í mig. Það er ekki nokkur spurning. Svona eru bara þessi erfiðu móment í fótbolta og ég veit að Kristján verður mættur á æfingu á morgun og klár í slaginn en 100% pirraður og ég skil hann vel.“

Óskar Hrafn: Við verðum bara að skora fleiri mörk

Óskar Hrafn var mjög ánægður með sína menn í kvöld. Hefði viljað fá fleiri mörk þó.Vísir / Anton Brink

Óskar Hrafn Þorvaldsson var ánægður með sína menn en hefði viljað fá fleiri mörk. Hann var spurður að því hvort þetta gerðist eitthvað betra en það sem KR sýndi á köflum í dag.

„Já já, það gerir það. Við hefðum getað skorað fleiri mörk. Það hefði getað verið betra. Að undanskildum fyrstu 10 mínútunum þar sem mér fannst við aðeins taugaveiklaðir og fannst eins og við hefðum átt að vera tilbúnari í FH orkumiklum út í byrjun. Við spiluðum annars vel. Erum stundum opnir og erum margir frammi. Það getur litið illa út en mér fannst við heilt yfir hafa góða stjórn á þessum leik.“

„Við verðum bara að skora fleiri mörk. Við verðum að nýta færin okkar betur því það koma leikir þar sem við fáum ekki svona mörg færi og þá lendum við í basli. Mér fannst við verða pínu hrokafullir og ekki bera virðingu fyrir færunum okkar.“

KR voru mjög orkumiklir í fyrri en tempruðust aðeins í seinni hálfleik. Sér Óskar einhverja ástæðu fyrir breytingunni?

„Leikurinn róaðist bara heilt yfir. FH-ingar gáfu mjög mikið í fyrri hálfleikinn og eðlilega þegar þeir stigu af bensíngjöfinni þá gerðist það að sjálfum sér hjá okkur að orkan fór. Ég veit það ekki samt. Ég á eftir að skoða þetta betur og skoða hlaupatölur en mér fannst við ágætlega skarpir þegar við komumst inn á síðasta þriðjung í báðum hálfleikjum. En svo þegar við komumst upp við markið þá klikkaði eitthvað. Vinnslan var góð heilt yfir allan leikinn og ég get ekkert kvartað yfir því. Mér fannst við aðeins soft í fyrri og mín tilfinning var að þeir væru yfir í návigjum í fyrri hálfleik.“ 

„Hvað á ég að segja? Góður sigur, fjögur mörk, fullt af færum og við fengum frekar fá færi á okkur. Áfram gakk. Við þurfum að spila betur ef við ætlum að gera eitthvað. Við þurfum að halda áfram að bæta okkur. Við getum ekki staðið hérna og klappað okkur á brjóstið og haldið að við séum geggjaðir og búnir að sigra heiminn. Það er alls ekki þannig. Við þurfum að vera betri á báðum helmingum vallarins og við þurfum að ver a grimmari því við munum fá liðin sem eru líkamlega sterkari en FH liðið. Þá þurfum við að vera klárir í það.“

Óskar var svo spurður að því hvort hann hefði viljað enda leikinn einum til tveimur mönnum fleiri. FH-ingar gengu oft hart fram í kvöld.

„Ég veit það ekki. Það hefði alveg verið möguleiki. Brotin voru þess háttar í lokin þegar menn voru orðnir pirraðir og menn búnir að missa hausinn. Ég ætla ekki að fara að kvarta yfir því. Það er gott að enginn fer í bann hjá FH. Við viljum hafa þá sem sterkasta í næsta leik. Nú ríður á fyrir þá, ég hef verið í þeirra sporum, að byggja upp sem gengur ekki alltaf upp og er ekki alltaf beinn og breiður vegur. Ég vona bara að þeir haldi áfram með það sem var ákveðið í upphafi og treysta ferlinu.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira