Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Ágúst Orri Arnarson skrifar 23. apríl 2026 22:16 Cesc Fabregas er eftirsóttur þjálfari. Jonathan Moscrop/Getty Images Cesc Fabregas þykir líklegur til að taka við þjálfarastarfinu hjá Chelsea í ensku úrvalsdeildinni en fyrrum leikmaður félagsins varar hann við því.
Emmanuel Petit lék á sínum tíma með Arsenal, Chelsea og Barcelona, líkt og Fabregas. Þjálfarastarfið hjá Chelsea er laust eftir að Liam Rosenior var látinn fara og Fabregas er orðaður við starfið eftir að hafa náð góðum árangri með Como á Ítalíu. Petit ráðleggur Spánverjanum hins vegar að halda sig fjarri Chelsea að svo stöddu. „Cesc Fabregas til Chelsea? Nei, nei, nei. Ef hann getur valið á milli Chelsea og Barcelona, þá verður hann að fara til Barcelona, ekki Chelsea. Chelsea er í rugli, algjöru rugli,“ sagði Petit. Stór ástæða fyrir því að forveri Rosenior, Enzo Maresca, hætti störfum var ósætti við stjórnarmenn. Þjálfarinn titlaði sjálfan sig sem knattspyrnustjóra en stjórnarmenn leyfðu honum ekki að komast upp með það. „Þetta er martröð fyrir þjálfara og þetta er eiginlega martröð fyrir leikmenn líka. Þú munt finna meiri frið hjá Barcelona þó pressan þar sé heilmikil,“ sagði Petit um núverandi stjórnskipurit hjá Chelsea. Emmanuel Petit var leikmaður Chelsea frá 2001-04. Richard Sellers/Sportsphoto/Allstar via Getty Images Terry hefur þungar áhyggjur Fleiri fyrrum leikmenn Chelsea hafa lýst yfir áhyggjum af stöðu félagsins. John Terry hefur ekki trú á því að alvöru þjálfari vilji taka við starfinu. „Ég sit hérna og velti því fyrir mér hvert félagið stefnir. Við erum í leit að þjálfara en ég er ekki viss um hvenær stjórnin ætlar að fá nýjan þjálfara inn. Mun einhver alvöru þjálfari vilja koma til Chelsea eins og staðan er núna? Félagið getur ekki keypt leikmenn og mun líklega þurfa að selja marga af sínum bestu leikmönnum í sumar, sem er alltaf erfitt. Við munum ekki spila Evrópubolta, þó ég voni að ég hafi rangt fyrir mér með það. Ég finn fyrir reiði stuðningsmanna og ég skil hana,“ sagði Terry.
Enski boltinn Chelsea FC Mest lesið Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn Íslenski boltinn Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Fótbolti Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Golf Mourinho hringdi í Ferguson og grét Enski boltinn Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Körfubolti Kominn með samning við risafyrirtæki og fær eigin pílur Sport Sannaði að draumar geta ræst með gamalli mynd Fótbolti Trump segir að það væru skelfileg mistök að koma Infantino frá völdum Fótbolti Eyddi samfélagsmiðlum sínum Fótbolti Fleiri fréttir Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Englandsmeistararnir ekki sannfærandi Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Grípa í taumana eftir banaslys Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Coventry keypti leikmann af mótherjum Valsmanna Vildi ekki selja fyrirliðann og lofar að styrkja liðið í staðinn Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ NBA-goðsögn fjárfestir í enska fótboltafélaginu Ipswich Town Barcelona blandar sér í baráttuna um Rodri Sauð á leikmönnum Arsenal eftir tapið fyrir Betis Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Sjá meira