Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Atli Ísleifsson skrifar 22. apríl 2026 14:35 Eggert Þór Kristófersson er forstjóri First Water. Vísir/First Water Fiskeldisfyrirtækið First Water hefur lokið um ellefu milljarða króna fjármögnun, en um er að ræða útgáfu um sex milljarða króna breytanlegs skuldabréfs sem leidd sé af núverandi hluthöfum félagsins og um fimm milljarða króna lánsfjármögnun frá Landsbankanum og Arion banka.
Í tilkynningu segir að með fjármögnuninni muni félagið ljúka framkvæmdum við fyrsta áfanga í uppbyggingu félagsins og auka árlega framleiðslugetu úr 5.000 tonnum í 10.000 tonn af slægðum laxi. „First Water hefur nú frá stofnun sótt um 28 milljarða króna í hlutafé, um 6 milljarða í formi breytanlegs skuldabréfs ásamt um 18 milljarða króna í lánsfé og þannig tryggt sér fjármögnun sem nemur alls um 52 milljörðum króna. Á síðasta ári komu þrír lífeyrissjóðir inn sem nýir hluthafar hjá félaginu og eru nú 8 af 10 stærstu lífeyrissjóðum landsins í hluthafahópi First Water. Fjárfestingarfélagið Stoðir er eftir sem áður stærsti hluthafi félagsins með 33% hlut. Vikuleg slátrun hafin First Water lauk við uppbyggingu átta 25 metra yfirbyggðra landeldistanka í fyrra og uppskar í fyrsta skipti 5 kg slægðan hágæða lax í september 2025. Frá og með janúar á þessu ári hefur First Water hafið reglubundna uppskeru en meðalstærð við uppskeru hefur verið um 4,8 kg slægður með 95% yfirburðarhlutfalli (e. superior ratio) sem þýðir að 95% af fiskinum sem slátrað er fer í hæsta gæðaflokk. Gert er ráð fyrir því að heildaruppskera ársins 2026 verði um 3000 tonn slægður. Vikuleg slátrun (meðalstærð kg. og yfirburðarhlutfall Eftirsótt hágæðavara hjá kröfuhörðum kaupendum Sölustarfsemi First Water hefur gengið vel og hefur félagið selt stærstan hluta af uppskeru sinni til þessa til kaupenda í Evrópu og Bandaríkjunum. Félagið rekur fiskvinnsluhús í Þorlákshöfn með sérhæfðum vinnslulínum þar sem lax er unninn og pakkað til útflutnings vikulega. Afurðir félagsins hafa vakið athygli á erlendum mörkuðum og meðal viðskiptavina First Water eru kröfuharðir aðilar sem þjónusta mötuneyti þekktra fjármála- og tæknifyrirtækja í Bandaríkjunum og fyrirtæki sem dreifa ferskum hágæða matvælum í matvöruverslanir í Evrópu. Aukin framleiðslugeta Upphaflegar áætlanir First Water gerðu ráð fyrir að afköst landeldisstöðvarinnar yrðu samtals um 50.000 tonn á ári þegar stöðin væri full byggð og komin í fulla framleiðslu. Reynsla síðustu mánaða bendir til þess að framleiðslugeta félagsins verði meiri og er stefnt að því að framleiða um 60.000 tonn árlega af slægðum laxi. Þannig verður framleiðslugeta First Water um 20.000 tonn þegar fyrstu tveir áfangarnir verða komnir í fulla notkun,“ segir í tilkynningunni.
Fiskeldi Landeldi Ölfus Mest lesið Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira