„Ég vil ekki vinna með döpru fólki eða með neikvæðu fólki“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. apríl 2026 19:58 Roberto De Zerbi fagnaði vel mörkum Tottenham með aðstoðarmönnum sínum í dag. Getty/Catherine Ivill Roberto de Zerbi, stjóri Tottenham, var aðeins nokkrum mínútum í uppbótartíma frá því að vinna sinn fyrsta sigur sem stjóri liðsins.
Tottenham var 2-1 yfir á móti Brighton og á leið upp úr fallsæti þegar Brighton skoraði jöfnunarmark í uppbótartíma. „Ég er vonsvikinn með úrslitin, fyrir hönd leikmannanna því þeir eru að þjást of mikið. Í dag áttum við skilið að vinna leikinn gegn frábæru liði Brighton. Við hefðum ekki átt að fá á okkur þetta mark frá Rutter,“ sagði Roberto de Zerbi við Sky Sports. „Ég er jákvæður og ég er stoltur af leikmönnum mínum. Þeir spiluðu frábæran leik með karakter og anda. Við verðum að vera sterkari en þessi úrslit, við verðum að halda áfram að undirbúa næsta leik og reyna að vinna leikinn gegn Wolves,“ sagði De Zerbi. Vonbrigðin voru mikil í leikslok enda stefndi í frábæran sigur. „Ég sagði þeim að vera sterkir og að fylgja mér aftur og aftur því ég vil hjálpa þeim. Þeir geta breytt hugarfarinu því það er mikilvægasti hlutinn. Nú er of auðvelt að hugsa neikvætt, en við verðum að einbeita okkur að þessari frammistöðu og vinna að því að skapa skilyrði til að vinna aftur. Ég er jákvæður því ég þekki leikmennina mína, ég þekki kosti þeirra. Ég þekki þá sem manneskjur og ég trúi á þá,“ sagði De Zerbi. „Ég veit að við erum að berjast fyrir því að halda okkur í ensku úrvalsdeildinni. Þetta eru mjög erfiðir tímar. En við erum heppin, hvert og eitt okkar, að vinna hjá þessu félagi með þessum stuðningsmönnum því andrúmsloftið í dag var ótrúlegt. Maður myndi halda að við værum að berjast um Meistaradeildarsæti, ekki fall. Við munum berjast í hverjum leik allt til enda og gefa okkar besta. Ef við getum gefið okkar besta, þá er þetta ekki búið enn,“ sagði De Zerbi. Um hvort hann hafi séð jákvæð teikn: „Í dag sá ég merki, ég sá blóð, karakter, gæði, skipulag með og án bolta. Allt sem þarf til að ná markmiði okkar,“ sagði De Zerbi. Um hvað þurfi enn að vinna í: „Við þurfum að bæta margt. Mikilvægasti hlutinn er að halda þessu hugarfari og ég sagði leikmönnunum að koma á mánudag með sama hugarfar og þeir sýndu í dag. Ég vil ekki vinna með döpru fólki eða með neikvæðu fólki. Þeir verða að trúa á mig. Ef ég er hér, þá er það vegna þess að ég er jákvæður á að halda okkur í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili,“ sagði De Zerbi.
Enski boltinn Tottenham Hotspur Mest lesið 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Enski boltinn Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Fótbolti Framherjaleit Breiðabliks lokið Íslenski boltinn Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Golf Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Fótbolti Jorge Messi látinn Fótbolti Fleiri fréttir Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Grípa í taumana eftir banaslys Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Coventry keypti leikmann af mótherjum Valsmanna Vildi ekki selja fyrirliðann og lofar að styrkja liðið í staðinn Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ NBA-goðsögn fjárfestir í enska fótboltafélaginu Ipswich Town Barcelona blandar sér í baráttuna um Rodri Sauð á leikmönnum Arsenal eftir tapið fyrir Betis Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Sjá meira