Sport

Shelvey leggur skóna á hilluna

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Jonjo Shelvey var litríkur leikmaður.
Jonjo Shelvey var litríkur leikmaður. Ahmad Mora/Getty Images

Skrautlegum leikmannaferli Jonjo Shelvey er lokið. 

Shelvey endaði ferilinn í C-deildinni í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hjá liði Arabia Falcons og fer ekki langt, því hann er orðinn þjálfari liðsins.

Á sínum tíma sem leikmaður náði hann háum hæðum.

Hann fór ungur til Liverpool og þótti mikið efni en var síðan seldur til Swansea City. Þaðan var hann seldur til Newcastle og hann varði meirihluta ferilsins í svarthvítu treyjunni eða til 2023.

Fáir spyrntu boltanum betur en Shelvey, sem spilaði tæplega 278 leiki í ensku úrvalsdeildinni en fékk 47 gul spjöld og 2 rauð á þeim tíma.

Hann var gagnrýndur hjá Swansea fyrir að sanka að sér gulum spjöldum með letilegum brotum þegar hann var í lélegu leikformi.

Hjá Newcastle breyttist hljóp meiri hundur í hann og Shelvey leikbann fyrir ofbeldisfullt brot í fyrsta leik liðsins aftur í ensku úrvalsdeildinni árið 2017, þegar hann steig á Dele Alli. Hann hafði verið settur í leikbann og sektaður tímabilið á undan fyrir kynþáttahatur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×