„Þetta er ákveðin skák“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 10. apríl 2026 21:26 Aron Rafn var frábær hjá Haukum í kvöld. Vísir/Vilhelm „Ákefð í 60 mínútur, ekki í 45 mínútur. Það fannst mér vera lykillinn að þessu,“ sagði Aron Rafn Eðvarðsson, markvörður Hauka, sem átti stórleik í marki sinna manna í kvöld þegar Haukar jöfnuðu í einvígi sínu gegn FH í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn.
Aron Rafn varði 19 skot í leiknum og var með 47,5% markvörslu sem hjálpaði liði hans feykilega mikið við það að landa fimm marka sigri gegn erkióvininum. Lokatölur 27-22 á Ásvöllum. „Við náðum að standa vörnina í 60 mínútur og mér fannst það eiginlega vera munurinn á leikjunum og við vorum að sjálfsögðu að nýta dauðafærin töluvert betur. Ég veit ekki hvað Jón Þórarinn [markvörður FH] var með í síðasta leik, en hann var með eitthvað í kringum 45% markvörslu sem var munurinn í þeim leik. Það var munurinn á þessum tveimur leikjum.“ Það var frábær mæting á þennan leik sem hófst með einnar mínútu þögn til heiðurs Björgvins Halldórssonar. Eftir það voru lætin gríðarleg allt til leiks loka, en þrátt fyrir fimm marka sigur var leikurinn jafn og spennandi meiri hluta leiksins. „Það var ógeðslega gaman að spila þennan leik. Mér fannst ég ekki vera í takt í leiknum í fyrri hálfleik þó að ég var með níu bolta, en ég fann að þetta var að koma og bara naut mín. Þetta er úrslitakeppnin og það er ógeðslega gaman að spila fyrir fullu húsi og Haukar-FH og allar klisjurnar í bókinni. Ef maður getur ekki notið sín í svona leikjum þá veit maður ekki hvar maður ætti að vera í handbolta.“ Næsti leikur einvígisins er á þriðjudaginn í Kaplakrika. „Við verðum bara að halda þessari ákefð áfram, það er stutt á milli leikja og þetta er ákveðin skák. FH-inganir munu koma alveg brjálaðir í þann leik og við verðum líka að vera klárir. Við vitum að við getum ekkert gefið eftir. Þurfum að mæta þá eins og við mættum í dag,“ sagði Aron Rafn að lokum.
Haukar Olís-deild karla Mest lesið Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sport Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Fótbolti Missti móður sína og stýrir Frakklandi ekki gegn Noregi Fótbolti Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Fótbolti „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Fótbolti Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Íslenski boltinn Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Fótbolti „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Fótbolti Neitar að róa með Normönnum Fótbolti Ólympíumeistari féll á lyfjaprófi í þriðja sinn Sport Fleiri fréttir Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Sjá meira