Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Magnús Jochum Pálsson skrifar 10. apríl 2026 16:40 Davíð hafði leitað að föðurfjölskyldu sinni um árabil þegar frænka hans, Juka, hafði óvænt samband. Ekki nóg með það heldur boðaði hún líka óvænt komu sína til Íslands með stuttum fyrirvara og þau loksins í gær eftir fimm ára bið. Leikarinn Davíð Þór Katrínarson hefur um árabil reynt að hafa uppi á gambískum föður sínum og föðurfjölskyldu. Frænka Davíðs frá Gambíu varð fyrri til að hafa samband og þau hittust í fyrsta sinn í Leifsstöð í vikunni. Hún var á meðal gesta á sýningunni Gæðablóð í gær þar sem Davíð segir meðal annars frá þessari leit sinni.
Sýningin Gæðablóð í leikstjórn Þóru Karítasar Árnadóttur var frumsýnd á stóra sviði Þjóðleikhússins 12. mars síðastliðinn. Davíð Þór, Unnsteinn Manuel Stefánsson og Jónmundur Grétarsson sviðsetja þar atvik úr eigin lífi sem afhjúpa samfélagið á óvæntan hátt. Davíð Þór segir frá leit sinni að föður sínum í sýningunni.Þjóðleikhúsið Davíð segir í einu atriðinu frá tilraunum sínum til að hafa uppi á gambískum föður sínum sem móðir hans kynntist í Osló. Áður en hann komst almennilega á sporið varð frænka hans, Fatou Juka Darboe, fyrri til og hafði samband við hann í gegnum Instagram. Þau hafa síðan orðið náin og kom hún loksins til landsins í vikunni. Blaðamaður ræddi við Davíð um þessa óvæntu frænku sem hafði samband, föðurfjölskylduna í Gambíu og heimildarmynd sem hann vinnur að um heimsókn til Gambíu. „Ég er frænka þín í Gambíu“ „Ég hef vitað af honum en aldrei vitað hvernig ég ætti að komast í samband við hann og aldrei haft samband við föðurfjölskylduna að neinu leyti,“ segir Davíð Þór um gambískan föður sinn. „Þangað til að Juka sendi mér skilaboð á Instagram: „Hey, ég er frænka þín í Gambíu“. Upp frá því kemst ég í samband við föðurfjölskylduna. Það eru fimm ár síðan, eiginlega upp á dag í apríl 2021, sem hún hefur samband og út frá því sprettur sýningin,“ segir Davíð um frænkuna og áhrif hennar á sýninguna Gæðablóð. Það voru fagnaðarfundir þegar frændsystkinin Juka og Davíð hittust loksins. „Við verðum ótrúlega góðir vinir mjög hratt. Hún er náttúrulega ein af hundrað frændsystkinunum, þetta er svo stór fjölskylda þarna úti. En hún er sú eina sem ég á svona djúpt samband við,“ segir hann. „Við kynntumst svo vel og svo var tilhugsunin um að kynnast hundrað öðrum á sama hátt svolítið yfirþyrmandi.“ Davíð hefur ekki komist til að heimsækja fjölskylduna í Gambíu en Juka tilkynnti honum í mars að hún væri á leiðinni til Íslands. „Hún hefur lengi talað um að koma og sagði mér í mars að hún væri að koma í apríl. Þannig ég fór af stað að undirbúa komuna,“ segir Davíð um Juku sem kom svo til landsins í gær þar sem þau hittust í fyrsta skiptið í persónu í Leifsstöð. Á milli tannanna á fólki í Gambíu Juka er mikil baráttukona fyrir réttindum kvenna í Gambíu og hefur hrist upp í umræðunni í heimalandi sínu. Gegnum samtöl þeirra hefur Davíð fengið að heyra um föðurfjölskylduna sína og komst að því að amma hans hefði fengist við tónlist, rétt eins og hann sjálfur. „Það er óhætt að segja að hún sé á milli tannanna á fólki í Gambíu, hún er með mjög framúrstefnulegar hugmyndir um hluverk kvenna. Samfélagið í Gambíu er að miklu leyti eftir á í þeim málum,“ segir Davíð. Davíð með Juku, barnsmóður sinni Védísi og móðurinni Katrínu. Juka er verkfræðimenntuð og rekur þrívíddarprentunarfyrirtæki í Gambíu sem var atkvæðimikið í baráttunni við Covid í heimsfaraldrinum með þróun heilbrigðis- og sóttvarnartækja. „Hún er gríðarlega vel menntuð og hefur fengið mörg tækifæri í Gambíu, miklu meira en meðalmanneskjan og nýtt það til að vekja athygli á réttindum kvenna,“ segir Davíð um Juku. „Ég er sannfærður um að hún verði forseti Gambíu einn daginn.“ Heimildarmynd í bígerð Juka var á meðal gesta á Gæðablóðum í gær en sýningin er ein af tveimur textuðum sýningum verksins. Þjóðleikhúsið hefur í ár boðið upp á textun á ensku og íslensku á sýningum valinna verka. Sýningin í gær seldist upp og enn eru laus sæti á miðvikudaginn, 15. apríl, í næstu viku. Juka fékk að kíkja baksviðs með strákunum. Davíð hefur sjálfur ekki komist til Gambíu en er um þessar mundir að vinna að heimildarmynd sem tengist leitinni að föðurfjölskyldunni. „Ég fór af stað með tveimur félögum að gera heimildarmynd um þetta allt saman og stefnum á að fara til Gambíu í tökur og kynnast föðurfjölskyldunni - draumurinn er að fara í janúar. Við ætluðum að fara fyrr en svo eignaðist ég tvö börn, lífið gerðist og ég hef ekki komist,“ segir Davíð.
Þjóðleikhúsið Leikhús Gambía Tímamót Fjölskyldumál Tengdar fréttir Hugljúft en stutt gaman Hversu marga höfunda þarf til að búa til 60 mínútna sýningu á stóra sviði Þjóðleikhússins? Það var spurningin sem leitaði á mig að lokinni frumsýningu á leikverkinu Gæðablóði. 17. mars 2026 07:01 Gæðastund með gæðablóðum Leikritið Gæðablóð var frumsýnt fimmtudaginn 12. mars á stóra sviði Þjóðleikhússins. Fjöldi góðra gesta úr leikhússenunni, menningarbransanum og öðrum geirum mætti til að sjá þá Unnstein Manúel Stefánsson, Jónmund Grétarsson og Davíð Þór Katrínarson stíga á svið. 18. mars 2026 16:41 Mest lesið Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Lífið „Hér er ég tólf árum seinna, enn að hugsa um þetta“ Tíska og hönnun Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Lífið Kallar próteinið gull og segir kreatín leyndan lykil að betri líðan Lífið samstarf Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram Lífið Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Lífið „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Lífið Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Lífið Tónlistargoðsögnin Clive Davis er látinn Tónlist Jeremy Strong „reivaði“ við Retro Stefson Tónlist Fleiri fréttir Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Útskiptin miklu og svikula elítan Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum „Mér finnst þetta nánast hafa komið fyrir einhvern annan en mig“ Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Sjá meira
Hugljúft en stutt gaman Hversu marga höfunda þarf til að búa til 60 mínútna sýningu á stóra sviði Þjóðleikhússins? Það var spurningin sem leitaði á mig að lokinni frumsýningu á leikverkinu Gæðablóði. 17. mars 2026 07:01
Gæðastund með gæðablóðum Leikritið Gæðablóð var frumsýnt fimmtudaginn 12. mars á stóra sviði Þjóðleikhússins. Fjöldi góðra gesta úr leikhússenunni, menningarbransanum og öðrum geirum mætti til að sjá þá Unnstein Manúel Stefánsson, Jónmund Grétarsson og Davíð Þór Katrínarson stíga á svið. 18. mars 2026 16:41