Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 8. apríl 2026 13:02 Björk þeytir skífum á sólmyrkvahátíð í Hafnarfirði í sumar. Santiago Felipe/Getty Images Stórstjarnan Björk var rétt í þessu að tilkynna Sólmyrkvahátíð á Víðistaðatúni í Hafnarfirði 12. ágúst næstkomandi þar sem hún þeytir skífum ásamt öflugum hópi tónlistarfólks.
Í fréttatilkynningu segir: „Allt er þegar þrennt er: Almyrkvi á sólu, sýning Bjarkar í Listasafni Íslands og 40 ára afmæli Smekkleysu. Í tilefni þessa er blásið til hátíðar á Víðistaðatúni, Hafnarfirði, miðvikudaginn 12.ágúst 2026. Mánakvöld Bjarkar og Smekkleysu hafa löngum skapað sér sess í íslensku menningarlífi, hvar Björk hefur um árabil boðið þekktu tónlistarfólki að utan að leika fyrir dansi undir fullu tungli í blandi við íslensku grasrótina. Að þessum sinni verður dansað undir almyrkva á sólu.“ Það eru spennandi verkefni framundan hjá Björk hérlendis. Aðsend Fram koma: Björk (dj) Arca (dj) Ronja Sideproject Fleiri tilkynntir síðar. Viðburðurinn fer fram samhliða sýningu Bjarkar á Listasafni Íslands sem stendur yfir frá 30. maí til 20. september 2026. Í safninu veita þrjár innsetningar gestum einstakt tækifæri til að upplifa alltumlykjandi verk sem búa yfir kynngimagnaðri hljóðrænni, sjónrænni og tilfinningalegri dýpt. Tvö þeirra eru tregaljóð, samin og útsett af Björk í minningu móður hennar og hið þriðja er nýtt verk af væntanlegri plötu Bjarkar. Ásamt sýningu Bjarkar verður á safninu sýning listamannsins James Merry, Ummyndlingar, en tvíeikið hefur unnið náið saman í fjölda ára. „Frá Víðistaðatúni í Hafnarfirði munu gestir upplifa almyrkva á sólu í eina mínútu og fjórar sekúndur, en áhrifa sólmyrkvans mun gæta í tvær klukkustundir. Nánari upplýsingar um það má nálgast hér. Innifalið í miðaverði er aðgangur að sýningum Bjarkar og James í Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg og sérhönnuð sólmyrkvagleraugu í anda viðburðarins. Þá bjóðast ennfremur til sölu í takmörkuðu upplagi pakkar með vel völdum árituðum eintökum af nýjum útgáfum, afmælisútgáfum og endur-útgáfum Smekkleysu,“ segir jafnframt í tilkynningunni. Miðasala hefst föstudaginn 10. apríl klukkan tíu inn á Tix.is. Tónleikafyrirtækið Garcia Events stendur að baki viðburðinum.
Tónleikar á Íslandi Tónlist Björk Hafnarfjörður Almyrkvi 12. ágúst 2026 Mest lesið Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tíska og hönnun Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Lífið Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Lífið „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Lífið Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Lífið Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð Tónlist Hefja framleiðslu á framhaldsmynd um Michael Jackson Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð „Þetta er ólýsanleg tilfinning“ Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Innipúkunum fjölgar enn Bonnie Tyler er látin Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Söngvari YMCA látinn Sjá meira