„Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 8. apríl 2026 11:55 Þorgerður Katrín hefur svarað Patreki Jaime eftir að hann lýsti yfir áhyggjum sínum af því að vera sendur í stríð. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra birti myndband á Facebook þar sem hún fullvissaði áhrifavaldinn Patrek Jaime um að hann yrði ekki sendur í stríð og að Íslendingar yrðu áfram herlaus þjóð. Patrekur hafði biðlað til hennar að senda hann ekki í stríð.
Áhrifavaldurinn Patrekur Jaime birti TikTok-myndband í gær þar sem hann sagði stöðugt talað um stríð þessa dagana og hann vildi því lista upp nokkrar ástæður fyrir því af hverju ætti ekki að senda hann í stríð. „Ég held að matur sem er borðaður í hernum sé ógeðslegur. Þannig að ég myndi ekki geta borðað þar. Ég yrði þá kannski „cunty skinny“ en ég held að það yrði ekki þess virði,“ sagði hann vera fyrstu ástæðuna. „Mér líður eins og það væri alltaf verið að neyða mig að kela við einhverja menn út af því þeir eru náttúrulega ekki með konunum sínum,“ sagði hann ástæðu tvö. „Ég yrði svo meðvirkur að ég myndi gera það og mig langar ógeðslega lítið að kela við eiginlega flestalla Íslendinga.“ „Númer þrjú er að ég kann ekkert á byssur og ég held ég væri líklegri til að skjóta óvart einhvern sem er með mér í liði heldur en á móti mér,“ sagði hann. Í fjórða lagi nefndi Patrekur að samkynhneigð væri ólögleg í mörgum löndum þar sem stríðsátök geisa og því yrði honum ekki hleypt inn í þau lönd. Það væri því eyðsla á skattpeningum að reyna að senda hann þangað. „Og númer fimm þá væri bara ógeðslega leiðinlegt fyrir íslensku þjóðina að missa mig. Þannig að plís, Þorgerður Katrín, ef þú ert að fara að senda mig í stríð hugsaðu þig tvisvar um.“ „Við erum herlaus þjóð og verðum það áfram“ Frá því myndbandið birtist í gær er búið að horfa á það rúmlega fimmtán þúsund sinnum og það vakið þó nokkra athygli. Nægilega mikla til að Þorgerður ákvað að svara Patreki með eigin myndbandi á Facebook. „Elsku Patti, það er enginn að fara senda þig í stríð, enginn og allra síst ég,“ sagði hún í upphafi myndbandsins. „Við erum herlaus þjóð og verðum það áfram, sama hvað hver segir,“ bætti hún síðan við. Taldi hún tilefni til að leiðrétta upplýsingaóreiðu um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. Kjósi þjóðin að halda viðræðunum áfram og þær endi með inngöngu Íslands í ESB verði landið samt áfram án hers. „Það verður enginn evrópskur her hér heima,“ sagði Þorgerður. Hún sagðist jafnframt sammála Patreki um að of mikið sé rætt um stríð og of mikið af stríði í veröldinni. Þá minnti hún á Evrópusambandið hafi verið stofnað í kringum frið og til að koma í veg fyrir frekari átök. „Elsku Patti, þú ert algjör þjóðargersemi. Ég vona að þú hafir haft það gott yfir páskana og þið öll hin þarna úti.“
Viðreisn Evrópusambandið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Hernaður Öryggis- og varnarmál Mest lesið Mikil sorg á Alþingi Lífið Hvað hafa þau að fela? Lífið „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Lífið Samstarfsfélagar að elskhugum Lífið Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Tónlist Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Lífið Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Tónlist Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi Lífið Fleiri fréttir Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Sjá meira