„Við styðjum við bakið á okkar þjálfara“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 4. apríl 2026 21:41 Sara Rún Hinriksdóttir var stigahæst hjá Keflavík í dag með 22 stig. Hulda/Vísir Keflavík jafnaði einvígið sitt gegn KR í úrslitakeppni Bónus-deild kvenna í kvöld með ellefu stiga sigri í Blue-höllinni. Mikið fjölmiðlafár var eftir fyrri leik liðanna vegna fjarveru Harðar Axels Vilhjálmssonar, þjálfara Keflavíkur, en það virtist ekki hafa haft nein áhrif á liðið. „
Þær voru 1-0 yfir í einvíginu og það gaf okkur auka hvatningu,“ sagði Sara Rún Hinriksdóttir, leikmaður Keflavíkur, eftir öflugan sigur liðsins í kvöld. „Þetta var skemmtilegur körfuboltaleikur. Hörku lið sem við vorum að keppa á móti og ég er virkilega ánægð með sigurinn.“ Það var stutt á milli hjá liðunum og hefði leikurinn getað dottið beggja megin. Það var ekki fyrr en í lok fjórða leikhluta sem Keflavík kláraði og sigraði leikinn sannfærandi. „Mér fannst við vera með yfirhöndina allan tímann, það var mín tilfinning. Þetta er sterkt lið sem við erum að keppa á móti og maður getur ekkert slakað á. Við kláruðum leikinn vel og ég er stolt af öllum leikmönnum liðsins og það voru allir einhvernveginn með góða orku.“ Helsta umfjöllun eftir fyrri leik liðanna í einvíginu varðaði fjarveru Harðar Axels sem var á Tenerife daginn fyrir leik. Sérfræðingar Körfuboltakvölds kvenna höfðu nóg um málið að segja og sagði Hallveig Jónsdóttir, þrefaldur Íslandsmeistari og einn af sérfræðingum þáttarins „Þú ert búinn að vera drulla í þig einhvern veginn allt tímabilið og ætlar ekki að vera með í undirbúningi. Ég væri brjáluð sem leikmaður.“ Sara Rún sagði hvorki ferðina né umfjöllunina hafa haft nein áhrif eins og sást í leiknum í kvöld. „Við vorum allar meðvitaðar um þetta. Arnór, aðstoðarþjálfarinn okkar, var með hörku æfingar á meðan. Þetta hafði engin áhrif á okkur og við styðjum við bakið á okkar þjálfara.“ „Hann naut þess að vera úti með sinni yndislegu fjölskyldu og við erum ánægðar að hann hafi gert það. Hann kom svo þrefalt til baka eins og sást í dag.“ Umræðan utan vallar hafði því engin áhrif á Keflavíkurliðið sem svaraði fyrir tapið og umræðuna með sterkum sigri og jafnaði einvígið.
Keflavík ÍF Bónus-deild kvenna Mest lesið Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn Selfyssingar syrgja Sport Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Fótbolti Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Yoro ekki til Íslands Fótbolti Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Fótbolti Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Fleiri fréttir „Mjög nálægt þessu og fáum sanngjarna umspil núna“ Líf og Emelía með: Hópurinn sem á að taka næstsíðasta skrefið að HM í Brasilíu Dregið í bikarnum: Meistararnir fá gesti úr Garðabæ Sjáðu Þorstein kynna hópinn fyrir HM-leiki við Króata „Meira en tvö stig undir“ Braut kynferðislega á Andy Carroll Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Ljót meiðsli og ælt á völlinn Yoro ekki til Íslands „Væri fínt ef þetta væru sex mánuðir“ Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur Grip ársins? „Þetta er út í hött“ George Gillett látinn Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Dauði varnarmannsins Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Selfyssingar syrgja Þjóðadeildin fer af stað í beinni Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar Garðar Ingi með þrjú mörk og Ómar og Gísli flugi áfram „Þær héldu að þær myndu labba yfir okkur“ „Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sjá meira