Ásgeir Karl og Tristan Máni unnu brons á EM Sindri Sverrisson skrifar 2. apríl 2026 20:41 Ásgeir Karl Gústafsson og Tristan Máni Nínuson unnu brons á EM ungmenna. EBF Ásgeir Karl Gústafsson og Tristan Máni Nínuson gerðu sér lítið fyrir og unnu bronsverðlaun í keilu, í tvímenningskeppni á Evrópumóti ungmenna í Berlín í dag.
Þetta er annað sinn sem Ísland vinnur brons á EYC móti en fyrir tveim árum vann Mikael Aron Vilhelmsson brons í Masters keppninni og árið 2011 vann Arnar Davíð Jónsson gull í Masterskeppninni. Ásgeir Karl og Tristan Máni léku í fjórða og síðasta riðli tvímenningskeppninnar og enduðu í 2. sæti riðilsins, með 2.705 pinna eða 225,4 í meðaltal. Aðeins Danirnir Tobias Kastfelt Bryde og Oscar Emil Porskrog gerðu betur í þeim riðli með 2.936 pinna eða 244,7 stig að meðaltali, í leikjunum sex. Danirnir reyndust hafa náð besta árangrinum af 54 pörum í tvímenningnum og þurftu Íslendingarnir að mæta þeim í undanúrslitunum. Þar munaði sáralitlu að íslensku strákarnir hefðu betur en Danirnir unnu að lokum 449-438. Í umfjöllun á vef keilusambandsins segir að úrslitin hafi ráðist í síðasta kasti Ásgeirs í 10. ramma, þar sem hann fékk erfiða 8 glennu. Hefði hann náð betra kasti, feykju og 9 í bónuskasti þá hefðu íslensku strákarnir komist í úrslitaleikinn. Sú varð ekki raunin og unnu Danirnir par frá Úkraínu í úrslitaleiknum. Ekki er spilað sérstaklega um 3. sætið og því hlutu íslensku strákarnir brons, sem og par frá Austurríki.
Keila Mest lesið „Stoltur af henni og hún á þetta mjög mikið skilið“ Sport Úrvalsdeildarfélög undirbúa málsókn gegn City Sport Haaland mætir ekki í viðtal eftir tíðindi dagsins Sport „Getum ekki mætt í neinn leik og leyft okkur að slaka á“ Sport Celtic og Rangers áfrýja Sport „Höfum talað digurbarkalega um það“ Fótbolti Internetið gerir grín að Caleb Williams Sport „Sagði bara við hann, ég skal taka þetta“ Sport Nafnarnir í KA sáu um Val Sport „Titlar eða föll hafa breyst á seinustu sekúndu“ Sport Fleiri fréttir Internetið gerir grín að Caleb Williams Celtic og Rangers áfrýja „Það er bara allt eða ekkert“ „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ „Stoltur af henni og hún á þetta mjög mikið skilið“ „Gaman að fara í svona úrslitaleiki“ „Getum ekki mætt í neinn leik og leyft okkur að slaka á“ Nafnarnir í KA sáu um Val „Titlar eða föll hafa breyst á seinustu sekúndu“ Haaland mætir ekki í viðtal eftir tíðindi dagsins Úrvalsdeildarfélög undirbúa málsókn gegn City „Höfum talað digurbarkalega um það“ „Sagði bara við hann, ég skal taka þetta“ „Þegar þú átt séns þá er það að reyna að grípa hann“ Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Tuchel segir Palmer of oft fjarverandi Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Sjáðu stórkostlega aukaspyrnu Daníels Tristans gegn Frökkum Lærisveinn Heimis tók af skarið: „Leikurinn við Ísrael ætti ekki að fara fram“ Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Umfjöllun: Ísland - Frakkland 1-1 | Draumamark Daníels og eitt stig Kósíheit inni og volg mjólk eftir æfingu: „Galið að skjóta svona á okkar kynslóð“ Antonelli klessti á og Russell næstum sekúndu hraðari en aðrir Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Arnar og Orri sátu fyrir svörum daginn fyrir fyrsta leik Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Sjáðu mörkin í Osló og Dorgu nota Ödegaard eins og hundasleða Sjá meira